Sjóvá birtir ársuppgjör 2020 fimmtudaginn 11. febrúar, fjárfestafundur sama dag
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir afkomu fjórða ársfjórðungs og ársins 2020 fimmtudaginn 11. febrúar nk., eftir lokun markaða.
Beint streymi frá kynningarfundi 11. febrúar kl. 16:15
Hermann Björnsson forstjóri mun kynna afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi og ársins 2020 og verður kynningunni streymt beint á slóðinni . Í ljósi aðstæðna verður fundurinn ekki opinn fjárfestum og markaðsaðilum en vilji aðilar bera upp spurningar sem tengjast uppgjörinu má senda þær á netfangið á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, í síma 844-2136 eða