A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Brynjar Þór nýr fjármálastjóri sameinaðs félags VÍS og Fossa

VÍS: Brynjar Þór nýr fjármálastjóri sameinaðs félags VÍS og Fossa

Brynjar Þór Hreinsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri sameinaðs félags VÍS og Fossa. Brynjar hefur mikla reynslu af innlendum fjármálamarkaði en hann hefur frá árinu 2018 starfað sem forstöðumaður eignastýringar Stapa lífeyrissjóðs. Þar áður var hann forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslenskum verðbréfum og forstöðumaður eignastýringar hjá Straumi fjárfestingarbanka. Brynjar hefur auk þess fjölbreytta reynslu af störfum erlendis m.a. sem forstöðumaður á lánasviði Straums-Burðarás og verið búsettur í London þar sem hann var framkvæmdastjóri eignaumsýslu ALMC ásamt því að vera framkvæmdastjóri CB Holding, sem var um tíma stærsti eigandi West Ham United. 

Brynjar Þór er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, próf í verðbréfaviðskiptum og BS-gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla.

Sameinað öflugt félag á fjármálamarkaði

Hluthafar VÍS samþykktu kaupin á Fossum 14. júní sl. en kaupin voru háð fyrirvörum sem nú hefur öllum verið aflétt fyrir utan fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands fyrir því að VÍS fari með virkan eignarhlut í Fossum fjárfestingarbanka hf. og Glym hf., og yfir 30% eignarhlut í T plús hf.

Brynjar Þór mun bera ábyrgð á fjármálum samstæðu ásamt því að taka virkan þátt í viðskiptaþróun sameinaðs félags. Brynjar mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn þess. Haraldur Þórðarson mun stýra rekstri samstæðunnar, Guðný Helga Herbertsdóttir tryggingarekstrinum, Steingrímur Arnar Finnsson fjárfestingarbankastarfseminni og Arnór Gunnarsson SIV eignastýringu.

Sameinað félag verður öflugt fyrirtæki á fjármálamarkaði með víðtækar starfsheimildir til fjármálaþjónustu. Sameinað félag byggir á 106 ára sögu, breiðum viðskiptamannagrunni, sterkum efnahagi og er með víðtæk tengsl við atvinnulíf og fjármálamarkaði. Þetta eru öflugir innviðir fyrir framúrskarandi þjónustu á sviði trygginga, fjárfestingarbanka, einkabanka, sjóða- og eignastýringar og annarrar sérhæfðrar fjármálaþjónustu. 

Brynjar Þór Hreinsson, nýr fjármálastjóri sameinaðs félags VÍS og Fossa:

„Framundan eru spennandi tímar hjá VÍS í kjölfar stofnunar SIV eignastýringar og sameiningar við Fossa fjárfestingarbanka. Samstæða þessara öflugu félaga býður upp á fjölmörg tækifæri til vaxtar á trygginga- og fjármálamarkaði. Ég er stoltur að taka við starfi fjármálastjóra samstæðunnar og fullur tilhlökkunar að vinna með framúrskarandi starfsmönnum félaganna að áframhaldandi vegferð og sókn þeirra.”

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með tölvupósti



EN
28/07/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025 Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Á...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör ársins.   Hægt verður að fylgjast með fundinum á . Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.    

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch