FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Ólafur Þór ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY

Fly Play hf.: Ólafur Þór ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY

Ólafur Þór ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY

Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY. Hann tekur við starfinu af Þóru Eggertsdóttur og hefur störf í byrjun nóvember.



Ólafur Þór gegndi starfi forstjóra, aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra fjármálasviðs Skeljungs hf. á árunum 2019-2022. Þar áður gegndi hann ýmsum stjórnunarstöðum í atvinnulífinu, hefur verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi, sinnt stjórnarsetu í nokkrum félögum og þá var hann endurskoðandi og meðeigandi hjá PricewaterhouseCoopers. Ólafur Þór sinnti jafnframt kennslu við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og er löggiltur endurskoðandi.



Ólafur Þór: „Ég er þakklátur fyrir það tækifæri að fá að vera þátttakandi í áframhaldandi uppbyggingu PLAY sem er að mínu mati á mjög áhugaverðum stað. Ég hlakka til að fá að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem eru framundan og vonast til þess að reynsla mín og þekking úr ólíkum atvinnugreinum komi félaginu að gagni.“



Birgir Jónsson, forstjóri PLAY: „Það er okkur einstök ánægja að kynna Ólaf Þór til leiks enda mikill fengur að honum fyrir félagið. Hann býr yfir gífurlegri reynslu úr fjölbreyttum áttum og er góð viðbót við sterkan stjórnendahóp PLAY. Nú þegar hann tekur við okkar sterka fjármálateymi getum við stigið ákveðnum skrefum fram á við og haldið áfram að hækka flugið. Ég býð Ólaf Þór hjartanlega velkominn um borð.”



EN
11/10/2022

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings Following PLAY’s announcement earlier today that the company had ceased operations, the company’s Board of Directors submitted a petition to the Reykjavik District Court earlier today for the company to be placed into bankruptcy proceedings. A ruling is expected to be issued tomorrow.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Í framhaldi á tilkynningu PLAY frá því fyrr í dag um að félagið hefði hætt starfsemi þá lagði stjórn félagsins fram beiðni fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur um að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þess er vænst að úrskurður verði kveðinn upp á morgun.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations The Board of Fly Play hf. has decided to cease operations. All of the company’s flights have been canceled. The company will work closely with authorities and employees to implement necessary measures to wind down operations. There are several reasons for this decision, including: the company’s performance has long been weaker than expected, ticket sales have been poor in recent weeks and months following negative media coverage of its operations, and there has been discontent among some employees due to changes in the company’s strategy. Great...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August PLAY carried 124,286 passengers in August 2025, compared to 187,960 passengers in August 2024. The difference year-on-year is primarily driven by the airline’s strategic shift in fleet deployment, with fewer aircraft operating within PLAY’s own route network due to ACMI leasing agreements with other operators. Despite the reduced capacity, the load factor was 89.6%, compared to 91.6% in August 2024. This slight decrease is a natural reflection of PLAY’s transition from a VIA-focused network, which typically achieves higher load fa...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch