MAREL Marel hf.

Marel: Rafrænn aðalfundur vegna COVID-19

Marel: Rafrænn aðalfundur vegna COVID-19

Þann 6. mars sl. lýstu embætti ríkislögreglustjóra í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis yfir neyðarstigi almannavarna í ljósi útbreiðslu COVID-19 á Íslandi. Af þessum sökum og í ljósi alvarlegs alþjóðlegs ástands hefur stjórn Marel ákveðið að aðalfundur félagsins, sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ miðvikudaginn 18. mars nk. kl. 16, verði einnig rafrænn, þ.e. hluthafar geti tekið þátt í fundinum með rafrænum hætti án þess að vera á staðnum.  Þeir sem taka þátt í fundinum með rafrænum hætti geta fylgst með vefstreymi af fundinum auk þess sem þeir geta kosið rafrænt á fundinum og borið upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi snjallforritið eða Lumi vefsíðuna.

Hluthafar og umboðsmenn þeirra eru eindregið hvattir til rafrænnar þátttöku í fundinum, hvort sem er með rafrænni atkvæðagreiðslu fyrir fundinn eða með rafrænni þátttöku á fundinum.  

Hluthafar sem hafa hug á því að sækja fundinn rafrænt verða að skrá þátttöku sína á fundinn fyrirfram, eins fljótt og auðið er og eigi síðar en kl. 12:00 GMT/13:00 CET á fundardegi. Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð í Kauphöllinni á Íslandi geta skráð þátttöku sína í gegnum á vefsíðu Marel. Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð í kauphöllina í Amsterdam geta skráð þátttöku sína í gegnum vörsluaðila sinn.

Hluthafar  eru  hvattir til þess að fylgja leiðbeiningum embættis landlæknis í tengslum við COVID-19. Farið verður fram á að þeir hluthafar sem sækja fundinn fylli út spurningalista á fundarstað, sem inniheldur m.a. spurningar varðandi ferðalög til svæða sem skilgreind hafa verið sem áhættusvæði og hugsanleg flensulík einkenni.

Meðfylgjandi eru frekari upplýsingar um rafræna þátttöku í aðalfundinum sem og endanleg dagskrá og tillögur stjórnar sem lagðar verða fyrir fundinn. Frestur til að skila inn tillögum er liðinn, sbr. grein 4.20 í samþykktum félagsins.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu félagsins:

 

 

Viðhengi

EN
11/03/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Marel hf.

Martijn Den Drijver
  • Martijn Den Drijver

MAREL HF : A solid quarter, 2024 guidance to be met, slight delay in J...

>Beats on order intake and EBIT (margin), sales a miss, ND/EBITDA down - MAREL beat css on order intake which is encouraging, also because order intake is up both QoQ and YoY (+3%). Sales of €387m missed css by 4%, primarily because of 1/ weak ad-hoc orders as order intake has been weak for a few quarters now and 2/weak sales in Poultry and Fish. Adjusted EBIT came in at €36.2m or a margin of 9.4% versus css of €33.4m or a margin of 8.3%. That is a beat of 8% on adj....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch