NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 27. mars 2025

Nova Klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 27. mars 2025

Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 27. mars 2025. Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

Sjálfkjörið var í stjórn félagsins en stjórn skipa eftirtalin:

  • Hrund Rudolfsdóttir  
  • Jón Óttar Birgisson  
  • Jóhannes Þorsteinsson  
  • Sigríður Olgeirsdóttir 
  • Steinunn Hlíf Sigurðardóttir

Stjórn hefur skipt með sér verkum og var Sigríður Olgeirsdóttir endurkjörin formaður stjórnar.

Í tilnefningarnefnd félagsins voru kjörin:  

  • Thelma Kristín Kvaran  
  • Helgi Bjarnason

Samþykkt var tillaga stjórnar um greiðslu arðs sem nemur 0.082 kr. á hlut, sem jafngildir um 300 milljónum kr., að teknu tilliti til eigin bréfa.

Samþykkt var tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár félagsins sem nemur 130.091.708 kr. að nafnvirði, en að teknu tilliti til lækkunarinnar nemur heildarhlutfé félagsins 3.553.874.756 kr. að nafnvirði. 

Samþykktar voru tillögur stjórnar um starfskjarastefnu félagsins og kaupréttaráætlanir.

Samþykkt var tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum sem fólu í sér breytingu á kjörtímabili stjórnar úr einu ári í tvö ár.

Niðurstöður aðalfundarins má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi fundargerð. 

Viðhengi



EN
27/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársuppgjörs 2025 verðu...

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársuppgjörs 2025 verður birt eftir lokun markaða á morgun, 26. febrúar Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða á morgun, fimmtudaginn 26. febrúar.Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 27. febrúar, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9, á 4. hæð. Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum. Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast ásamt ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 – Lok endur...

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 – Lok endurkaupa Í 8. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.100.000 eigin hluti að kaupverði 9.072.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)16.2.202610:34600.0004,332.598.00017.2.202610:39600.0004,332.598.00018.2.202609:57600.0004,332.598.00019.2.202610:28300.0004,261.278.000Samtals2.100.000 9.072.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Nova Klúbburinn átti 104.400.000 eigin hluti fyrir ...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Kaupin eru liður í markvissri vaxtarstefnu Nova klúbbsins og styrkja verulega stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði. Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki, þar á meðal langflest stærri fyrirtæki landsins. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býr það yfir öflugum innviðum á sviði vöru- og innkaupastýringar, vöruhúss, dreifingar og verkstæðisþjónustu. Ofar hefur áratuga reynslu af því að ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7 Í 7. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.242.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)09/02/202614:02600.0004,462.676.00010/02/20269:59600.0004,462.676.00011/02/20269:42600.0004,432.658.00012/02/202612:24600.0004,382.628.00013/02/20269:40600.0004,342.604.000Samtals3.000.000 13.242.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Renata Blöndal lætur af störfum hjá Nova

Nova klúbburinn hf.: Renata Blöndal lætur af störfum hjá Nova Renata Blöndal, framkvæmdastjóri Upplifunar hjá Nova, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Hún gekk til liðs við félagið árið 2023 og hefur á þeim tíma veitt sviðum stefnumótunar, viðskiptaþróunar og þjónustu forystu. Renata mun veita félaginu ráðgjöf og styðja við yfirfærslu verkefna næstu mánuði. Renata er með M.Sc. gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia háskóla í New York og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún kom til Nova frá Arctic Adventures þar sem hún var framkvæmdas...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch