OCS OCULIS HOLDING AG

Oculis birtir uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2025 og kynnir áfanga í rekstri félagsins

Oculis birtir uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2025 og kynnir áfanga í rekstri félagsins

ZUG, Sviss, Aug. 21, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) --

  • Á öðrum ársfjórðungi 2025 vann Oculis markvisst að áframhaldandi þróun lyfja á sviði augn- og augntaugasjúkdóma.
  • OCS-01: Innritun sjúklinga í báðar DIAMOND fasa 3 lykilrannsóknirnar er lokið og búist er við fyrstu niðurstöðum (e. topline results) á öðrum ársfjórðungi 2026 fyrir fyrstu hugsanlegu augndropameðferðina við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki (DME)
  • Privosegtor (OCS-05): Nú stendur yfir undirbúningur fyrir fasa 2/3 rannsókn á bráðri sjóntaugabólgu (AON) á fyrri árshelmingi 2026 í kjölfar jákvæðra niðurstaðna úr fasa 2 ACUITY-rannsókninni. Auk þess er hafin klínísk þróun fyrir tvær nýjar ábendingar á fyrstu hugsanlegu taugaverndandi meðferðinni við NAION (e. non-arteritic anterior ischemic optic neuropathy) og MS-köstum
  • Licaminlimab (OCS-02): Undirbúningur fyrir fyrstu fasa 2/3 rannsóknina, á seinni árshelmingi 2025, á einstaklingsmiðaðri lyfjameðferð byggðri á erfðamerki til meðhöndlunar á augnþurrki
  • Til viðbótar við handbært fé, ígildi handbærs fjár og skammtímafjárfestingar, sem námu 201,3 milljónum USD 30. júní 2025 og tryggja fjármögnun félagsins fram yfir ársbyrjun 2028, var nýlega tilkynnt um aukna lánsheimild hjá BlackRock sem veitir aðgang að allt að 123,7 milljónum USD

ZOculis Holding AG (Nasdaq: OCS / XICE: OCS.IC) („Oculis“ eða „félagið“), alþjóðlegt líftæknifyrirtæki með áherslu á nýsköpun við meðferð á augn- og augntaugasjúkdómum í því skyni að mæta verulegum óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum, birti í dag uppgjör fyrir annan ársfjórðung, sem lauk 30. júní 2025, og kynnti nýlega áfanga í rekstri félagsins.

Riad Sherif, M.D., framkvæmdastjóri Oculis: „Við leggjum ríka áherslu á gæði í framkvæmd rannsóknar- og þróunarstarfs til að tryggja framþróun einstakra þróunarlyfja okkar til að mæta verulegum óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum. Hröð innritun sjúklinga í báðar fasa 3 DIAMOND-rannsóknirnar er til marks um mikinn stuðning læknasamfélagsins við OCS-01, sem gæti orðið fyrsta augndropameðferðin við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki (DME), en fyrstu niðurstöður eru væntanlegar á öðrum ársfjórðungi 2026. Við erum einnig að undirbúa fasa 2/3 rannsókn byggða á erfðamerki á fyrri árshelmingi 2025 fyrir licaminlimab (OCS-02) sem fyrstu einstaklingsmiðuðu lyfjameðferðina við augnþurrki. Enn fremur má nefna jákvæðar niðurstöður úr fasa 2 ACUITY-rannsókninni á Privosegtor (OCS-05) sem meðferð við bráðri sjóntaugabólgu, sem sýndu marktækt bætta sjón sem og taugaverndandi líffæra- og líffræðilegan ávinning og marka tímamót í mögulegum meðferðum til að vernda taugafrumur og taugaþræði, auk þess að svara langvarandi þörf á sviði taugaverndandi meðferðar. Með þessum sterku vísbendingum um virkni opnast ný tækifæri í augnlæknisfræði, augntaugasjúkdóma- og taugasjúkdómafræði.“

Nýlegir áfangar í framvindu rannsókna og áfangarnir fram undan:

  • OCS-01:
    • Innritun í DIAMOND fasa 3 rannsóknirnar er lokið þar sem yfir 800 sjúklingar voru innritaðir á 119 alþjóðlegum rannsóknarsetrum. Verði OCS-01 samþykkt gæti það orðið fyrsta augndropameðferðin við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki (DME).
    • Um 37 milljónir manna um allan heim þjást af sjónhimnubjúg af völdum sykursýki, sem felur í sér markaðstækifæri sem nemur ~5 milljörðum bandaríkjadala með verulegum óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum á snemmbæru inngripi og fyrir sjúklinga sem bregðast ekki nógu vel við hefðbundinni meðferð.
    • Fyrstu niðurstöður úr báðum rannsóknum eru væntanlegar á öðrum ársfjórðungi 2026 og fyrirhugað er að sækja um markaðsleyfi á seinni árshelmingi 2026.
  • Privosegtor (OCS-05):
    • Privosegtor er taugaverndandi þróunarlyf með möguleika á að verða fyrsta meðferð sinnar tegundar við sjóntaugabólgu, bráðri bólgu í sjóntaug sem getur leitt til varanlegrar sjónskerðingar og getur verið fyrsta merki um MS-sjúkdóm.
    • Niðurstöður fasa 2 ACUITY-rannsóknarinnar sýndu marktækt bætta sjón sem og taugaverndandi líffæra- og líffræðilegan ávinning.
    • Samskipti við Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) eru fyrirhuguð á 3. ársfjórðungi 2025 til að ræða þróunaráætlunina fyrir Privosegtor, þar á meðal fasa 2/3 rannsókn á meðferð við sjóntaugabólgu, sem búist er við að hefjist á fyrri árshelmingi 2026.
    • Taugaverndandi ávinningur Privosegtor skapar möguleika á víðtækri klínískri notkun sem meðferð við ýmsum augntaugasjúkdómum og taugasjúkdómum þar sem óuppfyllt þörf er mikil, þar á meðal fyrir nýju ábendingarnar tvær sem á að rannsaka: NAION og MS-köst.
  • Licaminlimab (OCS-02):
    • Þróunaráætlun sem byggist á erfðamerki fyrir einstaklingsmiðaða lyfjameðferð, samræmd við ráðgjöf Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA). Fasa 2/3 rannsókn hefst á öðrum árshelmingi 2025 í kjölfar þriggja fasa 2 rannsókna sem áður hafa farið fram með jákvæðum niðurstöðum.

Fjárhagsniðurstöður á seinni árshelmingi 2025

Hinn 30. júní 2025 átti Oculis handbært fé, jafngildi handbærs fjár og skammtímafjárfestingar sem námu 160,3 milljónum CHF eða 201,3 milljónum USD. Rannsókna- og þróunarkostnaður nam 14,9 milljónum CHF eða 18,1 milljón USD fyrir þriggja mánaða tímabilið sem lauk 30. júní 2025, en var 16,5 milljónir CHF eða 18,2 milljónir USD á sama tímabili árið 2024. Lækkunin stafaði einkum af tímasetningu tveggja rannsókna sem lokið var árið 2024, og var að hluta til mætt með kostnaði við rannsóknir og auknum starfsmannakostnaði í rannsóknum og þróun. Almennur rekstrarkostnaður nam 6,1 milljón CHF eða 7,4 milljónum USD fyrir þriggja mánaða tímabilið sem lauk 30. júní 2025, en var 6,3 milljónir CHF eða 6,9 milljónir USD á sama tímabili árið 2024. Lækkunin stafaði einkum af lægri kostnaði við utanaðkomandi sérfræðiþjónustu sem stofnað var til á fyrra ári.  Nettótap á grundvelli þess sem liðið er af árinu nam 58,6 milljónum CHF eða 67,9 milljónum USD fyrir sex mánaða tímabilið sem lauk 30. júní 2025, en var 36,9 milljónir CHF eða 41,5 milljónir CHF fyrir sama tímabil árið 2024. Aukningin var fyrst og fremst vegna framþróun klínískra rannsókna, auk 10,4 milljóna CHF eða 12,1 milljónar USD hækkunar á gangvirðisleiðréttingu skuldbindinga félagsins á grundvelli veittra áskriftarréttinda, vegna hækkunar á gangvirði undirliggjandi áskriftarréttinda.



Væntanlegir viðburðir:

Læknaráðstefnur og viðburðir innan greinarinnar

  • Ophthalmology Futures Retina Forum; 3. september, París, Frakklandi
  • EURETINA Innovation Spotlight; 3. september, París, Frakklandi
  • Aðalfundur EURETINA; 4.–7. september, París, Frakklandi
  • Aðalfundur Retina Society; 10.–13. september, Chicago, IL, Bandaríkjunum
  • Ophthalmology Futures European Forum; 11. september, Kaupmannahöfn, Danmörku
  • Ársþing ESCR; 12.–16. september, Kaupmannahöfn, Danmörku
  • Aðalfundur ECTRIMS; 24.–26. september, Barcelona, Spáni

Ráðstefnur fjárfesta

  • Wells Fargo Healthcare Conference; 3.–5. september, Boston, MA, Bandaríkjunum
  • HCW 27th Annual Global Investment Conference; 8.–10. september, New York-borg, NY, Bandaríkjunum
  • Baird 2025 Global Healthcare Conference; 9.–10. september, New York-borg, NY, Bandaríkjunum
  • Pareto Securities Healthcare Conference; 16. september, Stokkhólmi, Svíþjóð
  • Leerink Biopharma Summit; 17.–19. september, Healdsburg, CA, Bandaríkjunum



Efnahagsreikningur samstæðu (óendurskoðaður)

(Amounts in CHF thousands)As of June 30, As of December 31,
 2025 2024
ASSETS   
    
Non-current assets   
Property and equipment441 385
Intangible assets13.292 13.292
Right-of-use assets1.155 1.303
Other non-current assets533 476
Total non-current assets15.421 15.456
    
Current assets   
Other current assets4.721 5.605
Accrued income1.179 629
Short-term financial assets96.035 70.955
Cash and cash equivalents64.265 27.708
Total current assets166.200 104.897
    
TOTAL ASSETS181.621 120.353
    
EQUITY AND LIABILITIES   
    
Shareholders' equity   
Share capital558 446
Share premium466.438 344.946
Reserve for share-based payment22.363 16.062
Actuarial loss on post-employment benefit obligations (1.620)  (2.233)
Treasury shares (35)  (10)
Cumulative translation adjustments (462)  (271)
Accumulated losses (344.146)  (285.557)
Total equity143.096 73.383
    
Non-current liabilities   
Long-term lease liabilities720 865
Defined benefit pension liabilities1.259 1.870
Total non-current liabilities1.979 2.735
    
Current liabilities   
Trade payables1.204 5.871
Accrued expenses and other payables19.922 18.198
Short-term lease liabilities310 315
Warrant liabilities15.110 19.851
Total current liabilities36.546 44.235
    
Total liabilities38.525 46.970
    
TOTAL EQUITY AND LIABILITIES181.621 120.353



Rekstrarreikningur samstæðu (óendurskoðaður)

(Amounts in CHF thousands, except per share data) For the three months ended

June 30,
 For the six months ended

June 30,
  2025 2024 2025 2024
Grant income 261 245 545 467
Operating income 261 245 545 467
Research and development expenses  (14.909)  (16.465)  (29.680)  (27.321)
General and administrative expenses  (6.120)  (6.265)  (11.608)  (10.959)
Operating expenses  (21.029)  (22.730)  (41.288)  (38.280)
         
Operating loss  (20.768)  (22.485)  (40.743)  (37.813)
         
Finance income 520 660 1.013 1.241
Finance expense  (183)  (87)  (430)  (128)
Fair value adjustment on warrant liabilities  (234) 1.370  (12.145)  (1.699)
Foreign currency exchange loss, net  (4.734)  (267)  (6.301) 1.527
Finance result, net  (4.631) 1.676  (17.863) 941
         
Loss before tax for the period  (25.399)  (20.809)  (58.606)  (36.872)
         
Income tax expense 24  (30) 17  (60)
         
Loss for the period  (25.375)  (20.839)  (58.589)  (36.932)
         
Loss per share:        
Basic and diluted loss attributable to equity holders                       (0,49)                       (0,51)                       (1,16)                       (0,96)



-ENDIR-



Um Oculis

Oculis er alþjóðlegt líftæknifyrirtæki (Nasdaq: OCS; XICE; OCS) með áherslu á nýsköpun við meðferð á augn- og augntaugasjúkdómum í því skyni að mæta verulegum óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum. Í klínískri þróun hjá Oculis eru þrjú lykilþróunarlyf: OCS-01, augndropar í skráningarrannsóknum sem ætlunin er að verði fyrsta augndropameðferðin við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki; Privosegtor (OCS-05), taugaverndandi þróunarlyf í fasa 2 rannsóknum gegn bráðri sjóntaugabólgu, en lyfið kann einnig að hafa víðtæka notkunarmöguleika við öðrum augntauga- og taugasjúkdómum; og licaminlimab (OCS-02), augndropar í fasa 2 rannsóknum sem inniheldua TNF-hamlara og byggist á notkun erfðamerkis til að þróa einstaklingsmiðaða lyfjameðferð við augnþurrki. Höfuðstöðvar Oculis eru í Sviss og félagið er með starfsstöðvar í Bandaríkjunum og á Íslandi. Stjórnendur Oculis hafa mikla reynslu á sviði lyfjaiðnaðar og hafa náð miklum árangri hver á sínu sviði. Þá standa leiðandi alþjóðlegir fjárfestingarsjóðir á sviði heilbrigðisvísinda að baki félaginu.

Frekari upplýsingar er að finna á   

Tengiliðir hjá Oculis

Sylvia Cheung fjármálastjóri

Fjárfesta- og fjölmiðlatengsl

LifeSci Advisors

Corey Davis, Ph.D.



1-212-915-2577

Fyrirvarar

Þessi fréttatilkynning er þýðing á enskri útgáfu tilkynningarinnar. Ef misræmi kemur fram gildir orðalag ensku útgáfunnar. Fréttatilkynningin inniheldur staðhæfingar um atburði í framtíðinni (e. forward-looking statements) eins og hugtakið er skilgreint í bandarísku löggjöfinni Private Securities Litigation Reform Act of 1995, sbr. það sem fram kemur í eftirfarandi fyrirvörum á ensku.

Cautionary Statement Regarding Forward Looking Statements

This press release contains forward-looking statements and information. For example, statements regarding the potential benefits of the Company’s product candidates, the initiation, timing, progress and results of current and future clinical trials, Oculis’ research and development programs, regulatory and business strategy, including planned interactions with the FDA; Oculis’ future development plans; the timing or likelihood of regulatory filings and approvals; and the Company’s expected financial position and cash runway are forward-looking. All forward-looking statements are based on estimates and assumptions that, while considered reasonable by Oculis and its management, are inherently uncertain and are inherently subject to risks, variability, and contingencies, many of which are beyond Oculis’ control. These forward-looking statements are provided for illustrative purposes only and are not intended to serve as, and must not be relied on by an investor as, a guarantee, assurance, prediction or definitive statement of a fact or probability. Actual events and circumstances are difficult or impossible to predict and will differ from assumptions. All forward-looking statements are subject to risks, uncertainties and other factors that may cause actual results to differ materially from those that we expected and/or those expressed or implied by such forward-looking statements. Forward-looking statements are subject to numerous conditions, many of which are beyond the control of Oculis, including those set forth in the Risk Factors section of Oculis’ annual report on Form 20-F and other documents filed with the U.S. Securities and Exchange Commission (the “SEC”). Copies of these documents are available on the SEC’s website, Oculis undertakes no obligation to update these statements for revisions or changes after the date of this release, except as required by law.

Viðhengi



EN
21/08/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OCULIS HOLDING AG

 PRESS RELEASE

Oculis Reports Q2 2025 Financial Results and Provides Company Update

Oculis Reports Q2 2025 Financial Results and Provides Company Update ZUG, Switzerland, Aug. 21, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Focused execution in Q2 2025 to advance Oculis’ pipeline in ophthalmology and neuro-ophthalmology. OCS-01: Both pivotal Ph3 DIAMOND trials are fully enrolled, with topline results expected in Q2 2026 for the first potential eye drop to treat diabetic macular edema (DME) Privosegtor (OCS-05): Preparing to initiate Phase 2/3 trial in acute optic neuritis (AON) in 1H 2026 following positive Ph2 ACUITY results, and expanding clinical development into two new indications a...

 PRESS RELEASE

Oculis birtir uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2025 og kynnir áfanga í ...

Oculis birtir uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2025 og kynnir áfanga í rekstri félagsins ZUG, Sviss, Aug. 21, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Á öðrum ársfjórðungi 2025 vann Oculis markvisst að áframhaldandi þróun lyfja á sviði augn- og augntaugasjúkdóma. OCS-01: Innritun sjúklinga í báðar DIAMOND fasa 3 lykilrannsóknirnar er lokið og búist er við fyrstu niðurstöðum (e. topline results) á öðrum ársfjórðungi 2026 fyrir fyrstu hugsanlegu augndropameðferðina við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki (DME) Privosegtor (OCS-05): Nú stendur yfir undirbúningur fyrir fasa 2/3 rannsókn á bráðri sjóntaugabólg...

 PRESS RELEASE

Oculis Reports Q2 2025 Financial Results and Provides Company Update

Oculis Reports Q2 2025 Financial Results and Provides Company Update Focused execution in Q2 2025 to advance Oculis’ pipeline in ophthalmology and neuro-ophthalmologyOCS-01: Both pivotal Ph3 DIAMOND trials are fully enrolled, with topline results expected in Q2 2026 for the first potential eye drop to treat diabetic macular edema (DME)Privosegtor (OCS-05): Preparing to initiate Phase 2/3 trial in acute optic neuritis (AON) in 1H 2026 following positive Ph2 ACUITY results, and expanding clinical development into two new indications as the first potential neuroprotective treatment for non-art...

 PRESS RELEASE

Oculis to Participate in Upcoming H.C Wainwright 5th Annual Ophthalmol...

Oculis to Participate in Upcoming H.C Wainwright 5th Annual Ophthalmology Virtual Conference ZUG, Switzerland, Aug. 12, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS; XICE: OCS) (“Oculis”), a global biopharmaceutical company focused on innovations addressing ophthalmic and neuro-ophthalmic conditions with significant unmet medical needs, today announced that Oculis’ management will be participating in the H.C Wainwright 5th Annual Ophthalmology Virtual Conference on August 13, 2025. Sylvia Cheung, Oculis’ Chief Financial Officer, will be presenting a corporate update which will...

 PRESS RELEASE

Oculis to Participate in Upcoming H.C. Wainwright 5th Annual Ophthalmo...

Oculis to Participate in Upcoming H.C. Wainwright 5th Annual Ophthalmology Virtual Conference ZUG, Switzerland, Aug. 12, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS; XICE: OCS) (“Oculis”), a global biopharmaceutical company focused on innovations addressing ophthalmic and neuro-ophthalmic conditions with significant unmet medical needs, today announced that Oculis’ management will be participating in the H.C. Wainwright 5th Annual Ophthalmology Virtual Conference on August 13, 2025. Sylvia Cheung, Oculis’ Chief Financial Officer, will be presenting a corporate update whic...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch