Eimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025
Eimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025
Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 13. maí 2025.
Kynningarfundur 14. maí 2025
Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. maí nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.
Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins /investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.
Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir fundinn á netfangið .
Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, /investors.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang:
