HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Söluferli á eignarhlutum Olís í Olíudreifingu ehf. hætt

Hagar hf.: Söluferli á eignarhlutum Olís í Olíudreifingu ehf. hætt

Í tilkynningu frá Högum, þann 3. desember 2024, var greint frá því að óskuldbindandi tilboð hefðu borist í eignarhlut Olís, dótturfélags Haga, í Olíudreifingu ehf. (ODR). Í kjölfarið var þremur aðilum veittur frekari aðgangur að gögnum og boðið að skila inn uppfærðum óskuldbindandi tilboðum.

Allir þrír aðilar skiluðu uppfærðum tilboðum í 40% eignarhlut Olís í ODR. Tilboðin reyndust vera undir væntingum um virði félagsins, og hafa Hagar því ákveðið að hætta söluferli á eignarhlut sínum í ODR.     



Finnur Oddsson, forstjóri Haga hf.:

„Á þeim tíma sem söluferli ODR hefur staðið yfir hafa markaðsaðstæður félagsins styrkst og sömuleiðis rekstur, sem gengur vel. Við metum það svo að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti verði áfram sterk, eins og hækkun orkuspár gefur til kynna. Félagið býr að sterkum innviðum og þrautreyndum, öflugum hópi stjórnenda og starfsfólks og er þannig í ákjósanlegri stöðu til að nýta tækifæri sem felast í þjónustu með framtíðar orkugjafa samhliða orkuskiptum. Hjá Högum og Olís munum við sem eigendur og viðskiptavinir styðja ODR áfram í að treysta enn frekar þjónustu og rekstur og það mikilvæga hlutverk sem félagið gegnir þegar kemur að orkuinnviðum landsins, nú og til framtíðar.  

Þeim sem tóku þátt í söluferli ODR og studdu við það þökkum við áhugann og gott samstarf.“



Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Finn Oddsson, forstjóra Haga, á netfangið .



Olíudreifing er 40% í eigu Olís og 60% í eigu Festi. Félagið er mikilvægt innviðafélag hvað varðar birgðahald og dreifingu á eldsneyti á Íslandi.



EN
30/04/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. nóvember 2025

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. nóvember 2025 Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA260527. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.240 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,65% - 7,90%. Tilboðum að fjárhæð 400 m.kr. var tekið á 7,80 % flötum vöxtum. Útgáfudagur og uppgjör viðskipta er 26. nóvember 2025. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Nánari upplýsingar veita: Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki h...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Útboð á víxlum 19. nóvember 2025

Hagar hf.: Útboð á víxlum 19. nóvember 2025 Hagar hf. efna til útboðs á víxlum miðvikudaginn 19. nóvember 2025. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA260527. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður út...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Staðfesting á skýrslum um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaf...

Hagar hf.: Staðfesting á skýrslum um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka Meðfylgjandi má finna staðfestingu KPMG ehf. á skýrslum Haga hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu HAGA 021029, HAGA 120926 1 og HAGA161127. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar hálfsárs- og ársreiknings félagsins. Hálfsársuppgjör Haga var birt þann 16. október sl. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Haga hf. og voru skýrslur félagsins um fjárhagslegar kvaðir því staðfestar. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gu...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Fjárfestakynning 2F 2025/26

Hagar hf.: Fjárfestakynning 2F 2025/26 Meðfylgjandi er fjárfestakynning Haga á uppgjöri 2. ársfjórðungs 2025/26 sem haldin verður fyrir markaðsaðila og hluthafa kl. 8:30 í dag, föstudaginn 17. október 2025, á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík. Á fundinum munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum. Fundinum verður einnig streymt og er skráning á hann hér: Viðhengi

 PRESS RELEASE

Hagar hf: Financial results for Q2 2025/26

Hagar hf: Financial results for Q2 2025/26 Strong performance and a new retail center in the Faroe Islands The interim financial statements of Hagar hf. for the second quarter of the 2025/26 financial year were approved by the company’s Board of Directors and CEO at a board meeting held on 16 October 2025. The statements cover the period from 1 March to 31 August 2025. The interim financial statements include the consolidated accounts of the company and its subsidiaries and have been prepared in accordance with International Financial Reporting Standards (IFRS). The statements have been re...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch