Festi hf.: Endurkaup vika 32
Í 32. viku 2025 keypti Festi alls 160.000 eigin hluti fyrir 48.140.000 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
32 | 5.8.2025 | 13:21:22 | 50.000 | 302 | 15.100.000 |
32 | 6.8.2025 | 10:02:45 | 40.000 | 301 | 12.040.000 |
32 | 8.8.2025 | 10:13:54 | 70.000 | 300 | 21.000.000 |
160.000 | 48.140.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 1.066.226 hluti eða 0,34% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 980.000 eigin hluti fyrir 292.780.000 kr. og á í dag 1.226.226 hluti sem samsvarar 0,39% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 27. júní 2025 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 800 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ().
