NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Nova Klúbburinn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Nova klúbbsins hf. þann 27. mars 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum.

Stjórn Nova Klúbbsins hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar til kaupa á eigin bréfum. Útgefið hlutafé Nova klúbbsins er 3.553.874.756 hlutir og eru engir hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar. Endurkaupin nú munu, skv. ákvörðun stjórnar, nema allt að 550 milljónum kr. að kaupverði.

Framkvæmd áætlunarinnar hefst í dag, mánudaginn 12. maí, og mun áætlunin vera í gildi þar til framangreindri fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2026.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra.

Acro verðbréf mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, í síma 770 1090 eða með tölvupósti á .



EN
12/05/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 30

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 30 Í 30. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.700.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)21.7.202509:54600.0004,882.928.00022.7.202510:03600.0004,862.916.00023.7.202509:37600.0004,862.916.00025.7.202509:46600.0004,902.940.000Samtals2.400.000 11.700.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29 Í 29. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.628.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)14.7.202509:59600.0004,882.928.00015.7.202515:04600.0004,862.916.00016.7.202509:56600.0004,882.928.00017.7.202510:21600.0004,862.916.00018.7.202512:47600.0004,902.940.000Samtals3.000.000 14.628.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 28

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 28 Í 28. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.640.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)7.7.202514:23600.0004,892.934.0008.7.202509:48600.0004,882.928.0009.7.202510:50600.0004,872.922.00010.7.202510:30600.0004,872.922.00011.7.202514:45600.0004,892.934.000Samtals3.000.000 14.640.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - Íslandsbanki hf.

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - Íslandsbanki hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Sylvía Kristín Ólafsdóttir verður forstjóri Nova

Nova Klúbburinn hf.: Sylvía Kristín Ólafsdóttir verður forstjóri Nova Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Nova. Hún mun taka við starfinu af Margréti Tryggvadóttur sem tilkynnti í byrjun sumars að hún hygðist láta af störfum í lok árs. Sylvía hefur störf hjá Nova með haustinu.    Sylvía Kristín kemur til Nova frá Icelandair þar sem hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri rekstrar. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo. Sylvía starfaði einnig um árabil hjá Amazon, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle deild fyrirtæk...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch