AMRQ AMAROQ MINERALS LTD.

Niðurstöður tilraunaborana sumarsins skila hæsta gullmagni/gullstyrk úr Nalunaq í sögu Amaroq

Niðurstöður tilraunaborana sumarsins skila hæsta gullmagni/gullstyrk úr Nalunaq í sögu Amaroq

TORONTO, ONTARIO, Oct. 11, 2023 (GLOBE NEWSWIRE) -- („Amaroq,“ „félagið“ eða „fyrirtækið“)

Niðurstöður tilraunaborana sumarsins skila hæsta gullmagni/gullstyrk úr Nalunaq í sögu Amaroq

***Gullstyrkur upp á 182g/t Au yfir 0,69 metra mældist í sýnatöku úr meginæð Nalunaq, sem stækkar fyrsta vinnslusvæðið í efsta hluta námunnar í fjalllendinu (e. Mountain Block) þar sem fyrirhugað er að hefja námustarfsemi árið 2024***

***Uppgötvun á nýrri gullæð sem er 75 metra fyrir ofan meginæðina, þar sem gullstyrkur mælist hærri en nokkru sinni áður, eða 256 g/t Au, sem eykur til muna mögulegt vinnslusvæði í Nalunaq***

TORONTO, ONTARIO – 11. október 2023 – Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSXV, NASDAQ Iceland: AMRQ), auðlindafélag sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum á stóru landsvæði á Suður-Grænlandi, kynnir með ánægju niðurstöður úr tilraunaborunum árið 2023 í Nalunaq.

Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq, sagði:

„Þetta er hæsti gullstyrkur sem hefur fengist úr borunum í Nalunaq frá stofnun Amaroq Minerals árið 2017. Þessar niðurstöður auka þróunarmöguleika okkar til muna og staðfesta að gullsvæðið nær lengra og er víðfeðmara en áður var talið og núverandi áætlanir okkar um námugröft miðast við.

Borunaráætlunin á Mountain Block svæðinu í ár, þar sem boranir fara fram á tveimur stöðum í mikilli hæð, er til marks um skilvirkt samstarf milli tæknifólks Amaroq og verktaka á vegum fyrirtækisins, sem gerir okkur kleift að ná metnaðarfullum markmiðum okkar innan tímarammans sem við settum okkur fyrir tímabilið.

Þetta færir okkur enn nær innra markmiði okkar um að auka umsvif í nýtingu jarðefna við Nalunaq upp í 1 milljón troyesúnsa og jafnvel meira.

James Gilbertson, framkvæmdastjóri rannsókna hjá Amaroq, sagði:

„Könnunarstarf í Nalunaq í ár var með sérstakri áherslu á Mountain Block svæðið þar sem fyrirhugað er að hefja námustarfsemi árið 2024. Nú beinum við kröftum okkar að því að þróa frekari námustarfsemi í Nalunaq með jarðvegskönnun og fyrirhuguðum borunum á vænlegum stöðum á Target Block svæðinu.

Niðurstöðurnar hafa auk þess sýnt fram á mögulegan massa málmgrýtis í slútvegginum, í „75-æðinni“ svokallaðri, sem eykur enn möguleika á arðsemi og vinnslumöguleikum í Nalunaq.

Finna má frekari upplýsingar um niðurstöður frá Nalunaq með því að smella á eftirfarandi tengil:

Yfirlit

  • Hæsti gullstyrkur í sýnatöku fyrirtækisins í meginæðinni frá upphafi. 182 g/t Au yfir 0,69 metra í rannsóknum á framlengingu Mountain Block svæðisins.
  • Borun á sex borholum lokið, alls 1.731,43 m af tveimur pöllum í fjöllunum.
  • Allar sex borholurnar fóru í gegnum meginæðina eins og spáð hafði verið, og fjórar staðfestu verulega framlengingu á hágæðajarðefnum á Mountain Block svæðinu, sem verður meginviðfangsefni námuvinnslu fyrirtækisins sem fyrirhugað er að hefjist árið 2024.
  • Niðurstöðurnar veita ómetanlegar upplýsingar um eðli og samfellu meginæðarinnar sem skipta sköpum fyrir hönnun og skipulagningu námugraftar.
  • Rannsóknir sumarsins sýndu fram á nýja æð í berginu fyrir ofan meginæðina með gullmagni upp á 256 g/t Au yfir 0,5 metra. Æðin hefur verið nefnd „75-æðin“ og virðist hún svipað þykk og meginæðin, sem eykur möguleikana á að hægt sé að vinna hana með sömu innviðum og núverandi meginæð.
  • Amaroq væntir enn fremur niðurstaðna úr tveimur öðrum sýnatökum úr 75-æðinni sem rannsóknarstofan er að greina um þessar mundir.
  • Nýjar drónamyndir í háskerpu gefa mikilvæg ný gögn um uppbyggingu meginæðarinnar og 75 æðarinnar sem munu gagnast fyrir frekari boranir á árinu 2024
  • Frekari jarðvegskannanir eru fyrirhugaðar á fjórða ársfjórðungi 2023 með það fyrir augum að greina nýtt hágæðanámavinnslusvæði í Target Block sem er staðsett við hlið Mountain Block svæðisins.
  • Niðurstöður borana staðfesta enn frekar gildi Dolerite Dyke-berggangamódelsins til að afmarka betur þau svæði þar sem gullmagnið er mest.



Fyrirspurnir:

Amaroq Minerals Ltd.

Eldur Ólafsson, forstjóri

Eddie Wyvill, viðskiptaþróun

+44 (0)7713 126727

Stifel Nicolaus Europe Limited (tilnefnt sem ráðgjafarfyrirtæki og verðbréfamiðlari)

Callum Stewart

Varun Talwar

Simon Mensley

Ashton Clanfield

+44 (0) 20 7710 7600

Panmure Gordon (UK) Limited (sameiginlegur verðbréfamiðlari)

John Prior

Hugh Rich

Dougie Mcleod

+44 (0) 20 7886 2500

Camarco (fjármálaupplýsingagjöf)

Billy Clegg

Elfie Kent

Charlie Dingwall

+44 (0) 20 3757 4980

Fyrir fréttir af fyrirtækinu:

Fylgist með @Amaroq_Minerals á X (áður Twitter)

Fylgist með Amaroq Minerals Ltd. á LinkedIn

Frekari upplýsingar:

Um Amaroq Minerals

Helstu viðskiptamarkmið Amaroq Minerals eru að finna, rannsaka og þróa námur með gulli og öðrum verðmætum málmum á Grænlandi. Helsta eign fyrirtækisins er 100% eignarhlutur í Nalunaq-verkefninu, námugreftri á rannsóknarstigi sem er vel á veg kominn og með vinnsluleyfi sem tekur meðal annars til Nalunaq-gullnámunnar þar sem gröftur var stundaður áður. Fyrirtækið er með leyfi til að vinna gull og aðra verðmæta málma úr jörðu á Suður-Grænlandi, meðal annars úr gullbeltunum tveimur sem vitað er um á svæðinu. Amaroq Minerals er stofnsett samkvæmt kanadískum fyrirtækjalögum og er eini eigandi Nalunaq A/S, sem er stofnsett samkvæmt grænlenskum lögum um hlutafélög.

Upplýsingar um framtíðarhorfur

Í þessari fréttatilkynningu eru upplýsingar um framtíðarhorfur, í skilningi þar að lútandi verðbréfalöggjafar, sem endurspegla núverandi væntingar félagsins um væntanlega atburði og framtíðarvöxt reksturs félagsins. Í þessari fréttatilkynningu eru upplýsingar um framtíðarhorfur byggðar á ýmsum forsendum og háðar ýmsum áhættu- og óvissuþáttum, sem margir hverjir eru ekki á valdi fyrirtækisins og gætu valdið því að raunverulegar niðurstöður og atburðir séu verulega frábrugðin þeim sem koma fram, eða eru gefin í skyn, í slíkum upplýsingum um framtíðarhorfur. Slíkir áhættu- og óvissuþættir geta meðal annars verið þættirnir sem tilgreindir eru í liðnum „Áhættuþættir“ í útboðslýsingu fyrirtækisins á Upplýsingar um framtíðarhorfur í þessari fréttatilkynningu byggjast eingöngu á upplýsingum sem eru fyrirtækinu tiltækar og aðeins miðað við þá dagsetningu sem um ræðir. Nema annars sé krafist samkvæmt gildandi verðbréfalögum ber fyrirtækinu engin skylda til að uppfæra eða endurskoða upplýsingar um framtíðarhorfur í samræmi við nýjar aðstæður eða atburði. Engin eftirlitsstofnun með verðbréfaviðskiptum hefur samþykkt eða mótmælt efni þessarar fréttatilkynningar. Hvorki TSX Venture Exchange né eftirlitsaðili kauphallarinnar (samkvæmt skilgreiningu í reglum TSX Venture Exchange) ábyrgist að upplýsingarnar í þessari tilkynningu séu fullnægjandi eða réttar.

Innherjaupplýsingar

Þessi tilkynning inniheldur innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. bresku útgáfu reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðsmisnotkun („UK MAR“) og er hluti af breskum landslögum samkvæmt ákvæðum laganna um úrsögn úr Evrópusambandinu frá 2018 og reglugerð (ESB) nr. 596/2014 um markaðsmisnotkun („EU MAR“).

Yfirlýsing hæfs aðila

Áætlun um auðlindir í jarðvegi gerði dr. Lucy Roberts, MAusIMM(CP), aðaljarðfræðiráðgjafi við SRK Consulting (UK) Limited., sem er óháður hæfur aðili samkvæmt kröfum „National Instrument 43-101 („NI 43-101“)“. Dr. Roberts hefur samþykkt þá upplýsingagjöf sem hér er að finna.

Tæknilegu upplýsingarnar í þessari fréttatilkynningu voru samþykktar af James Gilbertson CGeol, sem er framkvæmdastjóri rannsókna hjá Amaroq Minerals og jarðfræðingur við Geological Society of London, og telst sem slíkur vera hæfur aðili í skilningi NI 43-101.

Orðalisti

AuGull
g/tgrömm í hverju tonni
kozþúsund troyesúnsur
mozmilljón troyesúnsur
ktþúsund tonn
mtmilljón tonn
ozTroyesúnsur
UTMalþverstæð Merkatorvörpun



EN
11/10/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on AMAROQ MINERALS LTD.

 PRESS RELEASE

Q1 2025 Financial Results

Q1 2025 Financial Results Reykjavík, May 14, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- ("Amaroq" or the "Company") Q1-2025 Financial Results TORONTO, ONTARIO – 14 May 2025 – Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSX-V, NASDAQ Iceland: AMRQ), an independent mining company with a substantial land package of gold and strategic mineral assets in Southern Greenland, is pleased to announce its Q1 2025 Financial Results. All dollar amounts are expressed in Canadian dollars unless otherwise noted. A remote presentation for analysts and investors will be held later today at 10:00am BST, details of which can be found furth...

 PRESS RELEASE

Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 

Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025  Reykjavík, May 14, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSX-V, NASDAQ Iceland: AMRQ) birtir í dag uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2025. Stjórnendur félagsins kynna uppgjörið á fundi í beinu streymi í dag kl. 9:00. Nánari upplýsingar um fundinn er að finna neðar í þessari tilkynningu. Eldur Olafsson, forstjóri Amaroq: “Eins og fram kom í kynningu okkar á ársuppgjöri 2024 leiddu veðurtengdar aðstæður á fyrsta ársfjórðungi til þess að það hægðist á framkvæmdum við vinnslustöð okkar í Nalunaq. Ég er aftur á...

 PRESS RELEASE

2024 Exploration Update for Strategic Minerals JV

2024 Exploration Update for Strategic Minerals JV Reykjavík, May 13, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- (“Amaroq” or the “Company” or the “Corporation”) 2024 Exploration Update for Strategic Minerals JV Amaroq Advances its Strategic Minerals Vision — Welcoming Dr. Steve Garwin TORONTO, ONTARIO – May 13, 2025 – Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSXV, NASDAQ Iceland: AMRQ), an independent mining company with a substantial land package of gold and strategic mineral assets in Southern Greenland, is pleased to provide an update on the 2024 exploration results across the Company’s strategic minerals portfoli...

 PRESS RELEASE

Notice of Results and Investor Presentation

Notice of Results and Investor Presentation Reykjavík, May 07, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) --  (“Amaroq Minerals” or the “Company”)  Notice of Results and Investor Presentation    TORONTO, ONTARIO – 7 May 2025 – Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSXV, NASDAQ Iceland: AMRQ), an independent mine development company with a substantial land package of gold and strategic mineral assets in Southern Greenland, will announce its Q1 2025 Financial Results on Wednesday, 14 May 2025.   A remote presentation for investors and analysts will be held on the same day at 10am BST. Details of how to join the presen...

 PRESS RELEASE

Update on Market Making Arrangements

Update on Market Making Arrangements Reykjavík, May 02, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- (“Amaroq” or the “Company” or the “Corporation”) Update on Market Making Arrangements TORONTO, ONTARIO – May 02, 2025 – Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSXV, NASDAQ Iceland: AMRQ), an independent mining company with a substantial land package of gold and strategic mineral assets in Southern Greenland, announces that it has signed an amendment to its existing market making agreement with Arion Bank hf., originally dated January 24, 2025. The amendment introduces a two-part structure for daily bid and ask quotes,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch