Sjóvá-Almennar tryggingar hf: Upplýsingar um virðisbreytingu óskráðra hlutabréfa og ávöxtun af fjárfestingareignum í stýringu á fyrsta ársfjórðungi ársins 2022
Í drögum að uppgjöri á fjárfestingarstarfssemi er virði óskráðra eigna fært niður um 300 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2022. Þessi breyting skýrist að mestu leyti af breytingu á gengi hlutabréfa í Controlant. Samkvæmt drögum að uppgjöri nemur ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu um 1,6% og fjárfestingartekjur af eignum í stýringu um 790 m.kr á fjórðungnum.
Frekari upplýsingar um afkomu félagsins verða kynntar við birtingu uppgjörs þann 5. maí nk. Áréttað skal að uppgjörið er í vinnslu og kann því að taka breytingum fram að birtingardegi.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið
