Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 6 keypti Sjóvá hf. 3.159.684 eigin hluti að kaupverði 62.379.190 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
03.02.2020 | 09:40:28 | 1.000.000 | 19,60 | 19.600.000 |
04.02.2020 | 15:29:57 | 661.739 | 19,60 | 12.970.084 |
07.02.2020 | 11:53:31 | 1.497.945 | 19,90 | 29.809.106 |
Samtals | 3.159.684 | 62.379.190 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 24. janúar 2020.
Komið hefur í ljós að í reglubundinni tilkynningu um kaup á eigin bréfum vegna kaupa í viku 5, sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. febrúar, var innsláttarvilla varðandi heildarfjölda eigin hluta að loknum viðskiptum í viku 5, en prósentutala rétt. Heildarfjöldi eigin hluta var þannig ranglega tilgreindur 47.089.637, en átti að vera 47.083.637.
Sjóvá átti því 47.083.637 eigin hluti fyrir viðskiptin í viku 6 og eiga að þeim loknum 50.243.321 eigin hluti eða sem nemur 3,62% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 7.653.519 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,55% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 150.982.843 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 12.658.228 hlutum eða sem nemur 0,91% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 6. mars 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið