Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 13 keypti Sjóvá 14.252 eigin hluti að kaupverði 510.222 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 1.4.2022 | 13:45:30 | 14.252 | 35,80 | 510.222 |
| Samtals | 14.252 | 510.222 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 25. febrúar 2022.
Sjóvá átti 60.122.078 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 60.136.330 eigin hluti eða sem nemur 4,74% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 6.944.536 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,55% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 242.327.487 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 16.527.124 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 5,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið
