Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið.
Í viku 35 keypti Sjóvá 1.184.507 eigin hluti að kaupverði 42.313.649 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
29.8.2022 | 09:30:38 | 726.000 | 35,80 | 25.990.800 |
30.8.2022 | 15:15:55 | 458.507 | 35,60 | 16.322.849 |
Samtals | 1.184.507 | 42.313.649 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. júlí 2022.
Sjóvá átti 35.943.792 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 37.128.299 eigin hluti eða sem nemur 3,05% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Sjóvá hefur keypt samtals 6.988.419 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,57% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 249.999.999 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 9.364.569 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,25% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð mátti þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið
