A1121L Sjova-Almennar tryggingar hf

Sjóvá – Árshlutauppgjör 1. ársfjórðungs 2024

Sjóvá – Árshlutauppgjör 1. ársfjórðungs 2024

Helstu niðurstöður úr árshlutauppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2024:

Fyrsti ársfjórðungur 2024 og horfur

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 242 m.kr. (1F 2023: 95 m.kr. tap)
  • Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 363 m.kr. (1F 2023: 812 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 421 m.kr. (1F 2023: 636 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 1,2% (1F 2023: 1,6%)
  • Samsett hlutfall 97,0% (1F 2023: 101,3%)
  • Horfur fyrir árið 2024 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2024 og til næstu 12 mánaða áætluð 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%.

Hermann Björnsson, forstjóri:

Afkoma Sjóvár á fyrsta ársfjórðungi nam 421 m.kr. og samsett hlutfall var 97%. Afkoma fjárfestinga fyrir fjármagnsliði var 703 m.kr. og afkoma af vátryggingasamningum var 242 m.kr.

Tekjur af vátryggingasamningum jukust um 10,1% samanborið við sama tímabil í fyrra og er tekjuvöxturinn jafnt á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.

Almennt séð var tjónaþróun í takt við áætlanir og umsvif í þjóðfélaginu þar sem tíðarfar var nokkuð betra en á 1F 2023. Eitt stórt brunatjón kom inn í okkar bækur á fjórðungnum. Í áætlunum er gert ráð fyrir tjónum af þessari stærðargráðu en eðli máls samkvæmt hafa þau afgerandi áhrif í þeim fjórðungi sem þau falla til.

Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir fjármagnsliði og skatta var 703 m.kr. sem er ásættanlegt í ljósi markaðsaðstæðna en miklar sveiflur hafa verið á eignamörkuðum það sem af er ári. Ríkisskuldabréf og önnur skuldabréf skiluðu jákvæðri ávöxtun á fjórðungum en skráð – og óskráð hlutabréf neikvæðri ávöxtun. Ávöxtun skráðra hlutabréfa var -1,1%, ríkisskuldabréfa 2,6% og safnsins alls 1,2%. Í lok fyrsta fjórðungs nam stærð eignasafnsins 56,6 milljörðum kr.

Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum var samþykkt á aðalfundi 7. mars 2024 og hefur nú samþykki fengist frá Fjármálaeftirlitinu. Endurkaup félagsins munu sem fyrr taka mið af gjaldþolsviðmiðum stjórnar.

Í byrjun apríl voru 10 ár frá skráningu Sjóvár á aðallista kauphallarinnar. Frá skráningu hefur Sjóvá orðið að stærsta vátryggingafélagi landsins, skilað jákvæðri afkomu af vátryggingasamningum á hverju ári og ánægja viðskiptavina hefur aukist en Sjóvá hefur verið efst fjármálafyrirtækja í Íslensku ánægjuvoginni síðastliðin 7 ár. Þá hefur félagið reynst afar arðbært fyrir eigendur með hagfelldri þróun hlutabréfaverðs félagsins ásamt reglulegum greiðslum til hluthafa.

Þá er gaman að segja frá því að í ár eru 25 ár síðan samstarf Sjóvár og Landsbjargar hófst. Sjóvá hefur átt í afar farsælu samstarfi við félagið í tengslum við ýmis forvarnarverkefni, öryggismál og tryggingar. Þá styrkti Sjóvá Landsbjörg árið 2022 um 142,5 m.kr. til kaupa á þremur skipum sem hafa nú öll verið tekin í notkun. Við erum afar stolt af því að hafa stutt við bakið á þessu öfluga félagi eins lengi og raun ber vitni og hlökkum til að halda þessu góða samstarfi áfram.

Horfur fyrir árið 2024 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2024 og til næstu 12 mánaða áætluð 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%. Þá eru áhrif áfallinna vaxta (vöxtunar) vátryggingaskuldar í samræmi við væntingar á fjórðungnum og má ætla að áhrifin verði neikvæð um 1.600-1.800 m.kr. á árinu 2024. Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu nemi 9,0% á ári til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til breytinga á óskráðum eignum eða verulegra breytinga á fjárfestingastefnu.

Kynningarfundur 19. apríl kl. 16:15

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 19. apríl kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni .

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Fjárhagsdagatal

2. ársfjórðungur 2024 17. júlí 2024

3. ársfjórðungur 2024 21. október 2024

Ársuppgjör 2024 6. febrúar 2025

Aðalfundur 2025 13. mars 2025

Nánari upplýsingar

Meðfylgjandi er fréttatilkynning, samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2024.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða .



Viðhengi



EN
19/04/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Sjova-Almennar tryggingar hf

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Sjóvá - Dagskrá og tillögur stjórnar vegna aðalfundar 12....

Leiðrétting: Sjóvá - Dagskrá og tillögur stjórnar vegna aðalfundar 12. mars 2026 Í áður birtu fundarboði og tillögum stjórnar félagsins fyrir aðalfund Sjóvá-Almennra trygginga hf. vantaði tillögu stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og starfsmenn Sjóvár-Almennra trygginga hf. Það leiðréttist hér með í meðfylgjandi fundarboði og tillögum stjórnar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Aðalfundur 12. mars 2026

Sjóvá - Aðalfundur 12. mars 2026 Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður í fundarsal félagsins Kringlunni 5, Reykjavík, fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 15:00.  Fundarboð með drögum að dagskrá fundarins og nánari upplýsingum um aðalfundarstörf er að finna í meðfylgjandi viðhengi ásamt tillögum stjórnar og skýrslu tilnefningarnefndar. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða . Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Sjóvá – Ársuppgjör 2025

Sjóvá – Ársuppgjör 2025 Helstu niðurstöður úr ársuppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. fyrir árið 2025: 2.066 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 92,6% á árinu 2025  Fjórði ársfjórðungur 2025   Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 129 m.kr. (4F 2024: 313 m.kr.)  Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 1.461 m.kr. (4F 2024: 2.679 m.kr.)  Hagnaður tímabilsins 1.400 m.kr. (4F 2024: 2.812 m.kr.)  Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 3,1% (4F 2024: 5,4%)  Samsett hlutfall 98,5% (4F 2024: 96,3%)   Árið 2025 og horfur fyrir árið 2026  Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir...

 PRESS RELEASE

Ársuppgjör 2025 verður birt 12. febrúar - kynningarfundur sama dag kl....

Ársuppgjör 2025 verður birt 12. febrúar - kynningarfundur sama dag kl. 16:15 Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir ársuppgjör fyrir árið 2025 og fjórða ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 12. febrúar nk. Kynningarfundur 12. febrúar kl. 16:15 Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 12. febrúar kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningun...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Tilkynning vegna viðskiptavaktar

Sjóvá: Tilkynning vegna viðskiptavaktar Sjóvá – Almennar tryggingar hf. og Landsbankinn hf. hafa endurnýjað og gert breytingar á samningi um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins, sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland. Samningurinn kveður á um að sem viðskiptavaki mun Landsbankinn setja í eigin reikning, daglega fram í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland kaup- og sölutilboð í hlutabréf SJOVA áður en markaður er opnaður, að lágmarki ISK 12.000.000 að markaðsvirði. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmagn sem viðskipt...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch