A1121L Sjova-Almennar tryggingar hf

Sjóvá – Árshlutauppgjör vegna 3. ársfjórðungs 2023

Sjóvá – Árshlutauppgjör vegna 3. ársfjórðungs 2023

26. október 2023 – Fréttatilkynning



2.304 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 95,9% á fyrstu níu mánuðum ársins

Þriðji ársfjórðungur 2023

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 578 m.kr. (3F 2022: 347 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 1.318 m.kr. (Tap 3F 2022: 84 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 1.738 m.kr. (3F 2022: 231 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 3,0% (3F 2022: 0,1%)
  • Samsett hlutfall 92,9% (3F 2022: 95,3%)

Fyrstu níu mánuðir ársins 2023 og horfur

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 946 m.kr. (9M 2022: 799 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 1.715 m.kr. (9M 2022: 535 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 2.304 m.kr. (9M 2022: 1.167 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 4,4% (9M 2022: 1,4%)
  • Samsett hlutfall 95,9% (9M 2022: 96,1%)
  • Horfur fyrir árið 2023 gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.000-1.300 m.kr. og samsett hlutfall 96-97%
  • Horfur til næstu 12 mánaða gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%

Hermann Björnsson, forstjóri:

Hagnaður Sjóvár á þriðja ársfjórðungi nam 1.738 m.kr. og var samsett hlutfall 92,9%. Grunnrekstur félagsins skilar virkilega sterkri niðurstöðu í krefjandi umhverfi en hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta á fjórðungnum nam 578 m.kr. Tekjur af vátryggingasamningum jukust um 9,5% miðað við sama fjórðung í fyrra og var vöxturinn bæði á fyrirtækja – og einstaklingsmarkaði. Góður vöxtur skýrist af miklum metnaði í þjónustu, þéttriðnu útibúaneti ásamt góðum stafrænum lausnum sem efla okkar þjónustustig enn frekar. Þegar talað er um krefjandi umhverfi þá má benda á fjölgun brunatjóna undanfarin misseri sem er áhyggjuefni og kallar á enn frekari greiningu tilvika og eftir atvikum skýrari aðgerðir til forvarna.

Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir fjármagnsliði og skatta nam 1.504 m. kr. á þriðja ársfjórðungi og skýrist að mestu leyti af söluhagnaði af eignarhlut Sjóvár í Kerecis sem nam 1.260 m.kr. Markaðir hafa verið erfiðir það sem af er ári og var ekki lát á því á fjórðungnum, þar sem bæði hlutabréf og skuldabréf lækkuðu almennt í verði. Ávöxtun fjárfestingaeigna nam 3,0% á fjórðungnum og skiluðu allir eignaflokkar, að undanskildum skráðum hlutabréfum, jákvæðri afkomu. Ávöxtun skuldabréfa með ríkisábyrgð var 0,6%, annarra skuldabréfa 1,2% en skráðra hlutabréfa -1,3% á fjórðungnum.

Hagnaður Sjóvár á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2.304 m.kr. og var samsett hlutfall 95,9%. Þar af nam hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 946 m.kr. og jókst um 18,5% á milli ára. Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir fjármagnsliði og skatta nam 2.131 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins.

Nýtt björgunarskip Landsbjargar, Jóhannes Briem, var afhent í mánuðinum við hátíðlega athöfn í Reykjavík. Sjóvá styrkti Landsbjörg um 142,5 milljónir til kaupa á þremur skipum sem hafa nú öll verið tekin í notkun. Það er okkur mikil ánægja að styðja við þetta brýna verkefni sem tryggir stóraukið öryggi, bæði á sjó og landi.

Horfur okkar fyrir afkomu þessa árs og til næstu 12 mánaða eru óbreyttar, þ.e. að samsett hlutfall ársins 2023 verði 96-97% og afkoma af vátryggingasamningum verði 1.000 – 1.300 m.kr. Horfur til næstu 12 mánaða gera ráð fyrir að samsett hlutfall verði 95-97% og afkoma af vátryggingasamningum verði 1.100 – 1.600 m.kr.

Kynningarfundur 26. október kl. 16:15

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 26. október kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni .

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Fjárhagsdagatal

Ársuppgjör 2023                       8. febrúar 2024

Aðalfundur 2024                       7. mars 2024

Nánari upplýsingar

Meðfylgjandi er fréttatilkynning, samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna þriðja ársfjórðungs 2023.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða .



Viðhengi



EN
26/10/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Sjova-Almennar tryggingar hf

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2025 er komin út

Sjóvá: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2025 er komin út Árs- og sjálfbærniskýrsla Sjóvá-Almennar tryggingar hf. fyrir árið 2025 hefur verið birt í tengslum við ársuppgjör félagsins. Árs- og sjálfbærniskýrslan er á rafrænu formi og hægt að nálgast hana á eftirfarandi vefsvæði  Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða .

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. verður haldinn fimmtuda...

Sjóvá: Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 - Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar Aðalfundur Sjóvár verður haldinn í fundarsal félagsins Kringlunni 5, Reykjavík, fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 15:00.   Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests sem var þann 2. mars sl. og er dagskrá aðalfundar því óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins 18. febrúar 2026. Fyrir aðalfundinum liggja því óbreyttar tillögur og ályktanir frá stjórn félagsins sbr. meðfylgjandi viðhengi. Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig ...

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Sjóvá - Dagskrá og tillögur stjórnar vegna aðalfundar 12....

Leiðrétting: Sjóvá - Dagskrá og tillögur stjórnar vegna aðalfundar 12. mars 2026 Í áður birtu fundarboði og tillögum stjórnar félagsins fyrir aðalfund Sjóvá-Almennra trygginga hf. vantaði tillögu stjórnar um kaupréttaráætlun fyrir forstjóra, æðstu stjórnendur og starfsmenn Sjóvár-Almennra trygginga hf. Það leiðréttist hér með í meðfylgjandi fundarboði og tillögum stjórnar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Aðalfundur 12. mars 2026

Sjóvá - Aðalfundur 12. mars 2026 Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður í fundarsal félagsins Kringlunni 5, Reykjavík, fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 15:00.  Fundarboð með drögum að dagskrá fundarins og nánari upplýsingum um aðalfundarstörf er að finna í meðfylgjandi viðhengi ásamt tillögum stjórnar og skýrslu tilnefningarnefndar. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða . Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Sjóvá – Ársuppgjör 2025

Sjóvá – Ársuppgjör 2025 Helstu niðurstöður úr ársuppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. fyrir árið 2025: 2.066 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 92,6% á árinu 2025  Fjórði ársfjórðungur 2025   Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 129 m.kr. (4F 2024: 313 m.kr.)  Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 1.461 m.kr. (4F 2024: 2.679 m.kr.)  Hagnaður tímabilsins 1.400 m.kr. (4F 2024: 2.812 m.kr.)  Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 3,1% (4F 2024: 5,4%)  Samsett hlutfall 98,5% (4F 2024: 96,3%)   Árið 2025 og horfur fyrir árið 2026  Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch