A1121L Sjova-Almennar tryggingar hf

Sjóvá: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Sjóvá: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

 
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf., sem haldinn var 10. mars 2023, veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 117.839.321 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir 10% af útgefnu hlutafé félagsins þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárlækkunar sem samþykkt var á sama aðalfundi. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. Heimildin gildir í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins og dótturfélaga þess fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.



Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Félagið á í dag 14.450.264 eigin hluti, eða sem nemur 1,23% af útgefnu hlutafé, og munu endurkaupin nema að hámarki kr. 7.352.941 að nafnverði þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,85% af útgefnu hlutafé félagsins.  Þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 250 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 10. september 2024 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.



Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu nema að hámarki 467.563 hlutum, eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í júlí 2023. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.



Markaðsviðskipti Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.



Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.



Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.



Nánari upplýsingar veitir:



Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið 



EN
29/08/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Sjova-Almennar tryggingar hf

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2025

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2025 479 m.kr. tap og samsett hlutfall 91,1% á fyrstu sex mánuðum ársins Annar ársfjórðungur 2025 Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 690 m.kr. (2F 2024: 150 m.kr. tap)Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 439 m.kr. (2F 2024: 317 m.kr. tap)Hagnaður tímabilsins 60 m.kr. (2F 2024: 434 m.kr. tap)Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -0,1% (2F 2024: 0,3%)Samsett hlutfall 92,1% (2F 2024: 101,8%)    Fyrstu sex mánuðir ársins 2025 og horfur Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 1.511 m.kr. (6M 2024: 92 m.kr.)Tap af fjárfe...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2025 verður birt 17. júlí – kynning...

Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2025 verður birt 17. júlí – kynningarfundur sama dag kl. 16:15 Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 17. júlí nk. Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 17. júlí nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Uppfært fjárhagsdagatal 2025

Sjóvá: Uppfært fjárhagsdagatal 2025 Fjárhagsdagatali Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur verið breytt og uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025 fært til 23. október. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. stefnir nú að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum: 2. fjórðungur 2025                          17. júlí 20253. fjórðungur 2025                          23. október 2025Ársuppgjör 2025                             12. febrúar 2026 Aðalfundur verður haldinn á neðangreindri dagsetningu: Aðalfundur 2026                    ...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Breytingar á viðskiptavakt

Sjóvá: Breytingar á viðskiptavakt Sjóvá – Almennar tryggingar hf. hefur gert samning við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagins, sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. júlí 2025. Samhliða hefur verið sagt upp samningi við Arion banka hf. og tekur uppsögnin gildi í lok dags 30. júní 2025. Tilgangur viðskiptavaktar er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í kauphöll Nasdaq Iceland í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist á hlutabréfum félagsins og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hæt...

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 1. ársfjórðungs 2025

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 1. ársfjórðungs 2025 Helstu niðurstöður úr árshlutauppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2025:  Fyrsti ársfjórðungur 2025 og horfur Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 821 m.kr. (1F 2024: 242 m.kr.)Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 1.126 m.kr. (1F 2024: 363 m.kr. hagnaður)Tap tímabilsins 540 m.kr. (1F 2024: 421 m.kr. hagnaður)Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -1,0% (1F 2024: 1,2%)Samsett hlutfall 90,2% (1F 2024: 97,0%) Horfur fyrir árið 2025 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2025 og t...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch