Sjóvá: Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum til stjórnar
Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Sjóvár vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 12. mars 2020.
Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til loka sunnudagsins 2. febrúar 2020. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á vefsvæði félagsins á slóðinni og skal skila á netfangið .
Tillaga nefndarinnar um stjórn félagsins verður kynnt samhliða aðalfundarboði sem birt verður skemmst þremur vikum fyrir aðalfund.
Almennur framboðsfrestur til stjórnar er fimm sólarhringum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefningarnefndar. Nefndin áskilur sér þó rétt til að endurskoða tillögu sína þar til tíu dögum fyrir aðalfund.