Sjóvá: Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum til stjórnar
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum til stjórnar
Tilnefningarnefnd Sjóvár auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Sjóvár vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður föstudaginn 11. mars 2022.
Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til loka fimmtudagsins 10. febrúar 2022. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem hægt er að nálgast á vefsvæði félagsins á slóðinni og skal skila á netfangið .
Tillaga nefndarinnar að tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu verður kynnt samhliða aðalfundarboði sem birt verður skemmst þremur vikum fyrir aðalfund.
Almennur framboðsfrestur til stjórnar er fimm sólarhringum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar fram að því tímamarki, en nefndin ábyrgist ekki að lagt verði mat á framboð sem berast þeim eftir 10. febrúar 2022. Nefndin áskilur sér þó rétt til að endurskoða tillögu þá sem birt verður samhliða aðalfundarboði og verður endurskoðuð tillaga þá birt a.m.k. tveimur dögum fyrir aðalfund.
