A1121L Sjova-Almennar tryggingar hf

Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Sjóvá - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf., sem haldinn var 12. mars 2021, veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 133.410.638 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir 10% af útgefnu hlutafé félagsins þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárlækkunar sem samþykkt var á sama aðalfundi. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. Heimildin gildir í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins og dótturfélaga þess fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Félagið á í dag 21.596.485 eigin hluti og munu endurkaupin að hámarki nema 6.993.006 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,14% af útgefnu hlutafé félagsins. Þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 250 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 10. mars 2022 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 467.266 hluti eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í júlí 2021. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Markaðsviðskipti Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/​2005.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. eiga 21.596.485 hluti, eða sem nemur 1,62% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið



EN
20/08/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Sjova-Almennar tryggingar hf

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2025 (SFCR)

Sjóvá: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2025 (SFCR) Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu fyrir árið 2025. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016. Skýrslunni er m.a. ætlað að veita almenningi og markaðsaðilum upplýsingar um fjárhagslegan styrk, áhættu, eignir og skuldir félagsins og talnaupplýsingar. Skýrslan er meðfylgjandi og má einnig finna á eftirfarandi síðu: 

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 - leiðrétting

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 - leiðrétting Í viðhengi er að finna leiðrétt skjal með helstu niðurstöðum frá aðalfundinum. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 - leiðrétting

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 - leiðrétting Í viðhengi er að finna leiðrétt skjal með helstu niðurstöðum frá aðalfundinum. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. fór fram í dag, fimmtudaginn 12. mars 2026. Í viðhengi er að finna helstu niðurstöður frá aðalfundinum. Kosið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórn hefur skipt með sér verkum. Formaður stjórnar er Björgólfur Jóhannsson og Hildur Árnadóttir varaformaður. Í stjórn félagsins voru kjörin:Björgólfur Jóhannsson                Guðmundur Örn Gunnarsson        Hildur Árnadóttir                        Ingi Jóhann Guðmundsson                Ingunn Agnes Kro                         Eftirtalin voru kjöri...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2025 er komin út

Sjóvá: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2025 er komin út Árs- og sjálfbærniskýrsla Sjóvá-Almennar tryggingar hf. fyrir árið 2025 hefur verið birt í tengslum við ársuppgjör félagsins. Árs- og sjálfbærniskýrslan er á rafrænu formi og hægt að nálgast hana á eftirfarandi vefsvæði  Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða .

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch