Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 43. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 77.946.000 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð |
23.10.2023 | 09:36 | 33.000 | 471,50 | 15.559.500 |
24.10.2023 | 15:15 | 33.000 | 472,50 | 15.592.500 |
25.10.2023 | 09:54 | 33.000 | 472,50 | 15.592.500 |
26.10.2023 | 09:54 | 33.000 | 472,50 | 15.592.500 |
27.10.2023 | 11:26 | 33.000 | 473,00 | 15.609.000 |
Samtals | 165.000 | 77.946.000 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.
Eimskip átti 1.989.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 2.154.320 hluti sem nemur 1,28% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur nú keypt samtals 429.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 19,95% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð er samtals kr. 203.857.500 sem nemur 20,39% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang:
