A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

SKAGI: Breytingar á skipuriti og framkvæmdastjórn

SKAGI: Breytingar á skipuriti og framkvæmdastjórn



Í framhaldi af tilfærslu tryggingarekstrar í dótturfélagið VÍS tryggingar hf. sem tók gildi um áramótin hefur verið tekin ákvörðun um að Skagi starfræki mannauðssvið sem mun þjóna öllum félögum innan samstæðunnar. Við þetta tilefni mun Anna Rós Ívarsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra mannauðs og menningar hjá VÍS um árabil flytjast til og taka við starfi framkvæmdastjóra mannauðs hjá Skaga. Hún mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn Skaga.  

Með því að starfrækja mannauðssvið  í móðurfélagi næst fram hagræði og samræming í rekstri samstæðunnar ásamt því að styðja við þróun fyrirtækjamenningar. Einingin mun m.a. hafa það verkefni að samræma mannauðsferla innan samstæðunnar með það fyrir augum að félög í samstæðu Skaga njóti þess góða árangurs sem náðst hefur í mannauðsmálum hjá VÍS á liðnum árum. Samhliða þessum breytingum verða regluvörslueiningar dótturfélagana sameinaðar í móðurfélagi þar sem regluvarsla fyrir samstæðufélög verður starfrækt. 

Haraldur I. Þórðarson: 

Nú um áramótin náðum við stórum áfanga þegar tilfærsla tryggingarekstrar í dótturfélagið VÍS tryggingar hf. raungerðist. Samhliða því höfum við einnig ráðist í skipulagsbreytingar sem miða að því að bæta þjónustu og auka rekstrarhagræði innan samstæðunnar. Það er mjög ánægjulegt að fá Önnu Rós til liðs við okkur í framkvæmdastjórn Skaga. Anna Rós hefur áralanga reynslu af mannauðsmálum, sem hafa verið mikilvægur þáttur í starfsemi VÍS á liðnum árum. Það er sérstaklega ánægjulegt að öll félög innan samstæðunnar njóti góðs af því framúrskarandi starfi sem mannauðsteymið hefur unnið hjá VÍS á liðnum árum  

Meðfylgjandi er mynd að skipuriti Skaga eftir breytingarnar. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Þórðarson í tölvupósti á    

Viðhengi



EN
09/01/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

Skagi: Uppgjör Skaga á 2. ársfjórðungi 2025

Skagi: Uppgjör Skaga á 2. ársfjórðungi 2025         17. júlí 2025 Besti fjórðungur tryggingastarfsemi VÍS frá skráningu Fjárfestingartekjur lita áfram afkomu Afkoma 2F og H1 2025 hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2F 2025 Samstæðan Hagnaður eftir skatta nam 972 m.kr. (2F 2024: 137 m.kr.).Hagnaður á hlut nam 0,51 kr. á tímabilinu.Arðsemi eigin fjár var 18,4% á ársgrundvelli (2F 2024: 2,7%) og gjaldþol samstæðu var 1,28 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 21.393 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Áframhaldandi tekjuvöxtur í tryggingastarfsemi VÍS sem óx um 8,9% á ...

 PRESS RELEASE

Skagi: Uppfærðar rekstrarhorfur fyrir rekstrarárið 2025

Skagi: Uppfærðar rekstrarhorfur fyrir rekstrarárið 2025 Drög að uppgjöri fyrri árshelmings ársins 2025 benda til þess að samsett hlutfall í tryggingastarfsemi VÍS á tímabilinu sé 90,6% sem er talsvert betra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í áður birtum rekstrahorfum fyrir árið 2025 í heild var áætlað að samsett hlutfall yrði á bilinu 93-96% með markmið um að vera undir 94%. Með vísan til þessa telur félagið rétt að uppfæra rekstrarhorfur í tryggingastarfsemi þannig að áætlað er að samsett hlutfall ársins verði á bilinu 92-95%. Áhrifaþættir á samsett hlutfall fyrri árshelmings eru m.a. eftirfa...

 PRESS RELEASE

Skagi: Uppfært fjárhagsdagatal Skaga fyrir fjárhagsárið 2025

Skagi: Uppfært fjárhagsdagatal Skaga fyrir fjárhagsárið 2025 Fjárhagsdagatali Skaga sem birt var þann 18. desember 2024 hefur verið breytt og er uppfært dagatal með eftirfarandi hætti: Fjárhagsdagatal: 2. ársfjórðungur 2025 (árshlutareikningur)             fimmtudagur 17. júlí 2025 3. ársfjórðungur 2025 (árshlutareikningur)             miðvikudagur 29. október 2025          Ársuppgjör 2025                                                     miðvikudagur 18. febrúar 2026          Aðalfundur 2026                                                     þriðjudagur 17. mars 2026 Vakin er athy...

 PRESS RELEASE

Skagi: Breytingar á viðskiptavakt - nýir samningar um viðskiptavakt vi...

Skagi: Breytingar á viðskiptavakt - nýir samningar um viðskiptavakt við Arion banka hf. og Landsbankann hf. Skagi hf. hefur gert nýja samninga við Arion banka hf. og Landsbankann hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins, sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland. Samningarnir taka gildi frá og með 2. maí 2025. Samhliða hefur verið sagt upp samningi við Kviku banka hf. um viðskiptavakt. Uppsögnin tekur gildi í lok dags þann 30. apríl 2025. Tilgangur viðskiptavaktar er að efla seljanleika hlutabréfa Skaga hf., stuðla að virku og gagnsæju viðskiptaumhverfi og bæta verðmyndun hlutabréfanna. ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Uppgjör Skaga hf. á 1. ársfjórðungi 2025

SKAGI: Uppgjör Skaga hf. á 1. ársfjórðungi 2025 Góður taktur í grunnrekstri en neikvæð afkoma fjárfestinga litar niðurstöðurAfkoma 1F 2025 hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 1F 2025 Tap eftir skatta nam 1.353 mkr. (1F 2024:+136 mkr.).Neikvæðar fjárfestingatekjur og fjármagnsliðir draga afkomu samanlagt niður um 1.019 mkr. Þar af voru fjárfestingatekjur neikvæðar um 497 mkr., sem kemur til að mestu vegna lækkunar skráðra hlutabréfa um 1.063 m.kr.Áframhaldandi góður taktur í tryggingastarfsemi með 10,9% tekjuvöxt á milli ára. Samsett hlutfall 100,7% (1F 2024: 103,6%) og batnar um 2,9 ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch