A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

SKAGI: Skagi skráð sem formlegt nafn samstæðunnar

SKAGI: Skagi skráð sem formlegt nafn samstæðunnar

Skagi skráð sem formlegt nafn samstæðunnar

Skagi hf. er nú formlega skráð sem nafn móðurfélags VÍS trygginga hf., Fossa fjárfestingarbanka hf. og Íslenskra verðbréfa hf. Móðurfélag samstæðunnar hefur undanfarin misseri verið starfrækt undir nafni Vátryggingafélags Íslands hf. en fær nú nafnið Skagi í kjölfar þess að tryggingarekstur var færður í dótturfélag í upphafi árs. Þetta er lokahnykkur í þeirri vegferð að koma samstæðu Skaga í sitt framtíðarhorf.

Við sameiningu VÍS og Fossa fjárfestingarbanka árið 2023 hófst umbreytingarferli félaganna í öfluga fjármálasamstæðu. Framtíðarfyrirkomulag samstæðunnar, sem var kynnt þá, gerði ráð fyrir móðurfélagi og þremur öflugum dótturfélögum; VÍS tryggingum hf., Fossum fjárfestingarbanka hf. og SIV eignastýringu. Á síðasta ári gekk Skagi frá kaupum á Íslenskum verðbréfum og sameinast nú starfsemi eignastýringar undir nafni Íslenskra verðbréfa. Nafnið Skagi hefur nú verið skráð formlega fyrir móðurfélagið, sem undirstrikar skýrleika og stefnumótun félagsins til framtíðar. 

„Við höfum unnið markvisst að samþættingu starfsemi okkar með það að markmiði að skapa aukið virði fyrir viðskiptavini, hluthafa og samfélagið í heild,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga. „Skráning nafnsins er mikilvægur áfangi í þeirri vegferð. Nafnið Skagi endurspeglar þá sameinuðu krafta sem við höfum byggt upp innan samstæðunnar og styrkir stöðu okkar á fjármála- og tryggingamarkaði.“ 

Öflug tryggingastarfsemi og aukin ánægja viðskiptavina

Tryggingafélagið VÍS hefur á síðustu misserum styrkt stöðu sína á markaði með breyttum áherslum á sölufyrirkomulagi félagsins og aukinni þjónustu við viðskiptavini. Fyrirtækið hefur unnið að bættu þjónustuflæði, einföldun vátryggingarferla og aukinni sjálfsafgreiðslu fyrir viðskiptavini. 

„Við höfum séð miklar framfarir í tryggingastarfseminni þar sem okkur hefur tekist að auka ánægju viðskiptavina og bætt afkomu félagsins,“ segir Haraldur. „Við höfum einfaldað samskipti við viðskiptavini, innleitt skilvirkari skaðauppgjör og aukið áherslu á forvarnir, sem hefur skilað sér í jákvæðum árangri, bæði fyrir félagið og tryggingataka.“ 

Vaxandi eignastýring og sterkari markaðsstaða

Sameinað félag SIV eignastýringar og ÍV sjóða mun hljóta nafnið Íslensk verðbréf og til verður öflugt eigna- og sjóðastýringarfélag sem byggir á traustum grunni og reynslumiklum hópi sérfræðinga. Góður vöxtur hefur verið í eignastýringu innan Skaga og á síðasta ári nær tvöfölduðust eignir í stýringu innan samstæðunnar. Íslensk verðbréf hafa upp á að bjóða fjölbreytt úrval fjárfestingakosta fyrir jafnt almenna fjárfesta sem og fagfjárfesta.

Áframhaldandi markviss vöxtur Fossa

Fossar fjárfestingarbanki hefur á undanförnum árum tekið markviss skref til að vaxa inn í hlutverk leiðandi og sérhæfðs fjárfestingarbanka á Íslandi. Bankinn hefur notið þess að vera hluti af fjárhagslega sterkri samstæðu Skaga sem hefur stutt við vöxt bankans auk þess sem mikil tækifæri hafa skapast í bæði kostnaðar- og tekjusamlegð innan samstæðunnar. Ennfremur hefur bankinn átt greitt aðgengi að markaðsfjármögnun á skuldabréfamarkaði á samkeppnishæfum kjörum sem hefur stutt við vöxt á bankastarfsemi Fossa.

„Við höfum nú þegar séð mikinn tekjuvöxt í fjármálastarfsemi Skaga og á sama tíma höfum við náð fram verulegum hagræðingaráhrifum,“ bætir Haraldur við. „Við munum halda áfram að þróa þjónustu okkar með það að leiðarljósi að skapa sterkari og hagkvæmari samstæðu til framtíðar þar sem styrkleika er að finna innan rekstrareininga og með samvinnu þeirra.“ 

Með þessari skráningu staðfestir Skagi stefnu sína um að vera leiðandi afl í trygginga- og fjármálaþjónustu á Íslandi. 



EN
05/02/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025 Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Á...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör ársins.   Hægt verður að fylgjast með fundinum á . Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.    

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch