A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

SKAGI: Tilkynning um nýtingu kauprétta og hækkun hlutafjár

SKAGI: Tilkynning um nýtingu kauprétta og hækkun hlutafjár

Líkt og tilkynnt var um þann 3. desember 2024 eru í gildi kaupréttarsamningar við starfsfólk Skaga og dótturfélaga. Kaupréttarsamningarnir voru gerðir í samræmi við kaupréttaráætlun byggðri á 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem útfærð var af stjórn Skaga í júní 2024 og samþykkt af Skattinum í október sama ár.

Fyrsta innlausnartímabilinu samkvæmt kaupréttarsamningunum er nú lokið og bárust félaginu tilkynningar um nýtingu kaupréttar sem taka til samtals 9.379.970 hluta í félaginu á genginu 18,85 krónur á hvern hlut eða fyrir heildarfjárhæð kr. 176.812.461. 

Í tengslum við uppgjörið hefur stjórn Skaga samþykkt að nýta heimild sína samkvæmt bráðabirgðarákvæði I í viðauka I við samþykktir félagsins, til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta skuldbindingum samkvæmt framangreindum kaupréttarsamningnum. Hlutafé félagsins verður því hækkað um 9.379.970 hluti og mun eftir hækkun nema kr. 1.916.079.970 að nafnvirði. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq CSD og teknir til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.



EN
03/12/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 10 Í 10. viku 2026 keypti Skagi 2.117.312 eigin hluti að kaupverði alls kr. 39.158.638 eins og hér segir: VikaDagsetningTímiKeyptir hlutir ViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti Vika 102.3.202615:30350.00018,706.545.00010.682.688Vika 103.3.202609:43367.31218,556.813.63811.050.000Vika 104.3.202610:24400.00018,507.400.00011.450.000Vika 105.3.202613:30500.00018,409.200.00011.950.000Vika 106.3.202610:33500.00018,409.200.00012.450.000Samtals  2.117.312 39.158.638  Kaupin eru í samræmi við e...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025 Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Á...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch