A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

SKAGI: Vátryggingafélag Íslands (Skagi) kaupir Íslensk verðbréf

SKAGI: Vátryggingafélag Íslands (Skagi) kaupir Íslensk verðbréf

Vátryggingafélag Íslands hf. (Skagi) hefur undirritað kaupsamning við hluthafa Íslenskra verðbréfa hf. (ÍV) um kaup Skaga á 97,07% hlutafjár í félaginu. Horft er til þess að í kjölfarið verði farið í kaup hlutafjár annarra hluthafa þannig að Skagi verði einn eigandi alls hlutafjár í Íslenskum verðbréfum. Kaupverð 97,07% hlutafjár í Íslenskum verðbréfum er 1.598 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að kaupverðið verði greitt með reiðufé, en Skagi hefur val um að greiða allt að fjórðungi kaupverðsins með afhendingu nýs hlutafjár í Skaga. Fyrirtækjaráðgjöf og sérhæfðar fjárfestingar eru undanskilin í kaupunum. Jóhann M. Ólafsson, forstjóri ÍV, hefur stigið til hliðar og Jón Helgi Pétursson, framkvæmdastjóri ÍV sjóða, hefur tekið tímabundið við sem forstjóri félagsins.

Íslensk verðbréf, sem var stofnað árið 1987, er eitt elsta starfandi fjármálafyrirtæki landsins og með sterkt og þekkt vörumerki á íslenskum fjármálamarkaði. Félagið býður upp á þjónustu á sviði markaðsviðskipta, eigna- og sjóðastýringar og var með 96 milljarða króna í stýringu um síðustu áramót. Alls voru um 4.000 viðskiptavinir með fjármuni í eignastýringu og vörslu hjá Íslenskum verðbréfum í lok árs 2023.

Íslensk verðbréf hafa frá stofnun verið með höfuðstöðvar sínar á Akureyri og horft er til þess að starfsemi félagsins verði þar áfram, enda er markmið samstæðu Skaga að efla þjónustu við viðskiptavini á Norðurlandi. Eigna- og sjóðastýring ásamt markaðsviðskiptum verða starfrækt innan samstæðu Skaga og samþætt núverandi fjármálastarfsemi eftir að kaupin hafa gengið í gegn.

Rík áhersla er lögð á vöxt í kjarnastarfsemi Skaga, þ.e. í trygginga- og fjármálastarfsemi, og kaupin eru því mikilvægur áfangi í vegferð Skaga til þess að styrkja enn frekar grunnstoðir samstæðunnar, með innri og ytri vexti.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitsins.

Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga:

„Það er mikið gleðiefni að Íslensk verðbréf bætist í hóp öflugra fyrirtækja í samstæðu Skaga. Þessi viðbót mun efla þjónustu við viðskiptavini okkar á Norðurlandi og styrkir stöðu okkar á sviðum eignastýringar og markaðsviðskipta. Samstæða Skaga er nú þegar með öflugan rekstur á svæðinu en kaupin eru mikilvægt skref í frekari uppbyggingu fyrir norðan. Íslensk verðbréf hafa í hátt í fjóra áratugi boðið upp á framúrskarandi þjónustu á sviði eignastýringar og mun halda því áfram innan samstæðu Skaga.

Eignir í stýringu hjá Skaga munu nema um 220 milljörðum króna eftir viðskiptin og við færumst því nær langtímamarkmiðum okkar um vöxt á íslenskum fjármálamarkaði. Við erum líka stolt af því að framboð sjóða hjá Skaga eykst umtalsvert eftir kaupin. Við höfum metnaðarfull markmið um vöxt á íslenskum fjármálamarkaði og kaupin eru mikilvægur áfangi í þeirri vegferð.“

Jóhann M. Ólafsson, fráfarandi forstjóri Íslenskra verðbréfa:

„Undanfarin ár hefur Björg Capital Management, ásamt öflugum hópi starfsfólks, byggt upp starfsemi Íslenskra verðbréfa í höfuðstöðvum félagsins á Akureyri. Nú hefur Skagi, sem er öflugt fjármálafyrirtæki, séð tækifærið sem felst í því að halda áfram uppbyggingu á fjármálastarfsemi á Norðurlandi. Með sölunni gefst okkur í Björgu Capital Management aukið tækifæri til að efla sérhæfðar fjárfestingar svo sem í fiskeldi og stórþara ásamt öðrum verkefnum og þjónustu er tengjast bláa hagkerfinu. Þetta eru spennandi tímamót hjá okkur en við sjáum mikil tækifæri í því að leiða fjárfestingar, uppbyggingu og ráðgjöf hér á landi og erlendis á komandi árum, enda mikil þekking og reynsla á því sviði sem býr innan okkar raða.“

Frekari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri Skaga, í síma 660-5260 og með tölvupósti 



EN
07/05/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Uppfært fjárhagsdagatal fyrir fjárhagsárið 2024

SKAGI: Uppfært fjárhagsdagatal fyrir fjárhagsárið 2024 Neðangreint er uppfært fjárhagsdagatal Skaga (Vátryggingafélag Íslands hf.) fyrir fjárhagsárið 2024: 1. ársfjórðungur       miðvikudagur 29.05.2024 2. ársfjórðungur       miðvikudagur 28.08.2024 3. ársfjórðungur       miðvikudagur 27.11.2024 Ársuppgjör 2024      miðvikudagur 26.02.2025 Aðalfundur 2025      fimmtudagur 27.03.2025 Dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

 PRESS RELEASE

SKAGI: Vátryggingafélag Íslands (Skagi) kaupir Íslensk verðbréf

SKAGI: Vátryggingafélag Íslands (Skagi) kaupir Íslensk verðbréf Vátryggingafélag Íslands hf. (Skagi) hefur undirritað kaupsamning við hluthafa Íslenskra verðbréfa hf. (ÍV) um kaup Skaga á 97,07% hlutafjár í félaginu. Horft er til þess að í kjölfarið verði farið í kaup hlutafjár annarra hluthafa þannig að Skagi verði einn eigandi alls hlutafjár í Íslenskum verðbréfum. Kaupverð 97,07% hlutafjár í Íslenskum verðbréfum er 1.598 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að kaupverðið verði greitt með reiðufé, en Skagi hefur val um að greiða allt að fjórðungi kaupverðsins með afhendingu nýs hlutafjár í ...

 PRESS RELEASE

VÍS: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (SFCR) 2023

VÍS: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (SFCR) 2023 Vátryggingafélag Íslands hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu fyrir árið 2023. Í skýrslunni eru ítarlegar upplýsingar um starfsemi félagsins, gjaldþol og fjárhagslega stöðu. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016. Í skýrslunni eru veittar upplýsingar sem er ætlað að auka skilning á starfsemi félagsins. Fjallað er um stjórnkerfi VÍS, rekstur og afkomu af vátryggingastarfsemi og fjármálastarfsemi, skipulag og framkvæmd áhættustýringar, innri stjórnun og eftirlitskerf...

 PRESS RELEASE

VÍS: Breytt auðkenni

VÍS: Breytt auðkenni Vátryggingafélag Íslands hefur sótt um að breyta auðkenni hlutabréfa og skuldabréfa félagsins úr „VÍS“ í „SKAGI“. Sótt er um að þessi breyting verði gerð á bréfum skráðum hjá Nasdaq Iceland og samhliða hjá Nasdaq CSD. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi 25. mars 2024. Lögformlegu heiti félagsins, Vátryggingafélags Íslands hf., verður breytt í Skagi hf. þegar fyrir liggur heimild fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands til yfirfærslu á vátryggingastarfsemi félagsins í dótturfélagið VÍS tryggingar hf. Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir...

 PRESS RELEASE

VÍS: Breytingar á skipuriti og framkvæmdastjórn VÍS trygginga

VÍS: Breytingar á skipuriti og framkvæmdastjórn VÍS trygginga VÍS tryggingar hafa gert breytingar á skipuriti félagsins og ráðið tvo reynslumikla stjórnendur í störf framkvæmdastjóra. Jón Árni Traustason tekur við starfi framkvæmdastjóra fjármála og greininga. Jón Árni var forstöðumaður viðskiptagreindar hjá VÍS og tók sæti sem slíkur í framkvæmdastjórn í maí síðastliðnum. Hann hóf störf hjá félaginu árið 2018 en áður starfaði Jón Árni meðal annars hjá Skeljungi sem forstöðumaður upplýsingatækni og viðskiptagreindar. Jón Árni er með meistaragráðu (M.Sc) í fjármálastærðfræði frá háskólan...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch