A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Birkir nýr framkvæmdastjóri hjá VÍS

VÍS: Birkir nýr framkvæmdastjóri hjá VÍS

Birkir Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri kjarnastarfsemi hjá VÍS. Valgeir M. Baldursson, fráfarandi framkvæmdastjóri kjarnastarfsemi, sagði starfi sínu lausu fyrir skömmu. Hann hefur ráðið sig sem forstjóri Terra. 

Birkir mun sitja í framkvæmdastjórn félagsins og taka þannig þátt í stefnumótun þess. Hann mun bera ábyrgð á fjármálastjórn félagsins og að reksturinn sé í takt við áætlanir og markmið sem sett eru af stjórn og framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri kjarnastarfsemi ber einnig ábyrgð á því að hafa yfirsýn yfir áhættu vátrygginga hjá félaginu ─ og að sett séu markmið og mælikvarðar í tengslum við ábyrgan vátryggingarekstur. Þá ber hann ábyrgð á rekstri tjónadeilda félagsins. Auk þess mun Birkir sitja í fjárfestingaráði félagsins.  

Birkir hefur yfir 15 ára reynslu á fjármálamörkuðum. Nú síðast starfaði hann hjá Birti Capital Partners, þar sem hann hefur verið meðeigandi, en fyrirtækið sinnir víðtækri fjármálaráðgjöf. Birkir starfaði í fimm ár sem framkvæmdastjóri fjármála, reksturs og þróunar hjá Valitor. Áður starfaði Birkir meðal annars í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og hjá Lögmönnum Höfðabakka. Birkir er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík. Auk þess hefur Birkir lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og hefur réttindi sem héraðsdómslögmaður.

Birkir hefur formlega störf hjá félaginu 1. júní næstkomandi. 

Birkir Jóhannsson, framkvæmdastjóri kjarnastarfsemi VÍS. 

„Ég er stoltur af því að hefja störf hjá VÍS, sem ég tel vera framsæknasta tryggingafélagið á markaðnum. Framtíðarsýnin er að verða stafrænt þjónustufyrirtæki sem breytir því hvernig tryggingar virka. Mér finnst þetta metnaðarfull og spennandi framtíðarsýn og ég er fullur tilhlökkunar að leggja mitt á vogarskálarnar til þess að hún verði að veruleika.“ 

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS: 

„Á sama tíma og ég þakka Valgeiri kærlega fyrir hans hlut í uppbyggingu félagsins ─ sem og einkar ánægjulegt samstarf undanfarin ár ─ þá gleðst ég yfir því að fá Birki í okkar góða hóp. Ég hef miklar væntingar til Birkis og er þess fullviss að hann standi fullkomlega undir þeim. Víðtæk reynsla hans og menntun á eftir styrkja stjórnendahópinn enn frekar. Framundan eru spennandi verkefni hjá félaginu og ég hlakka til samstarfsins.“   

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir samskiptastjóri VÍS í síma 660-5260 og með tölvupósti



EN
25/03/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025 Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Á...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör ársins.   Hægt verður að fylgjast með fundinum á . Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.    

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch