A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Endanleg dagskrá og tillögur til framhaldsaðalfundar VÍS þann 19. maí 2020

VÍS: Endanleg dagskrá og tillögur til framhaldsaðalfundar VÍS þann 19. maí 2020

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 19. mars s.l. var tekin ákvörðun um að fresta ákvörðun um greiðslu arðs vegna reikningsársins 2019 til framhaldsaðalfundar, sem haldinn yrði innan tveggja mánaða frá aðalfundardegi.

Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. hefur boðað til framhaldsaðalfundar í félaginu sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, þriðjudaginn 19. maí 2020. Fundurinn hefst kl. 16:00.  Hluthafar eru beðnir um að kynna sér vandlega leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu og rafræna þátttöku að neðan og í meðfylgjandi viðhengi.

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:

  1. Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig fara skuli með hagnað félagsins og greiðslu arðs

Stjórn félagsins leggur til að enginn arður verði greiddur vegna ársins 2019 og að hagnaður ársins 2019 komi til hækkunar á eigin fé félagsins.

  1. Önnur mál löglega fram borin

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða fylgjast með fundinum í beinni útsendingu, þurfa að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsíðunni eigi síðar en kl. 16:00 þann 18. maí, eða degi fyrir fundardag. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun eingöngu fara fram í gegnum stafræna kosningakerfið Lumi AGM (). Hluthafar geta hlaðið niður smáforriti í eigin snjalltæki eða greitt atkvæði í gegnum vefslóð. Nánari upplýsingar um skráningu á fundinn og framkvæmd kosninga er að finna á vefsíðu félagsins.

Opið verður fyrir kosningu frá kl. 12:00 til kl. 16:00 á fundardegi. Eftir kl. 16:00 verður ekki unnt að kjósa um þær tillögur sem liggja fyrir fundinum.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni: .

Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hlutaskrárkerfi félagsins þegar framhaldsaðal­fundur fer fram geta beitt réttindum sínum á fundinum.

Framhaldsaðalfundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður.

Hluthafar geta lagt fram spurningar áður en framhaldsaðalfundurinn hefst með tölvupósti á netfangið eða á framhaldsaðalfundinum sjálfum. Fundarboð, sem vísast til að öðru leyti en hér greinir, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæða á fundarboðsdegi, tillaga stjórnar til framhaldsaðalfundar, ásamt umboðsformum eru nú aðgengileg á vefsíðu félagsins. Fundargögn eru á íslensku og ensku en hluthafafundurinn fer fram á íslensku. Sé misræmi milli fundargagna á ensku annars vegar og íslensku hins vegar, gildir íslenska útgáfan.

Viðhengi

EN
13/05/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Rekstrarhorfur og fjárhagsdagatal fyrir fjárhagsárið 2026

SKAGI: Rekstrarhorfur og fjárhagsdagatal fyrir fjárhagsárið 2026 Áætlun samstæðu Skaga fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að hagnaður verði 4,1 milljarðar króna eftir skatta sem samsvarar 17% arðsemi eiginfjár en markmið félagsins er að skila yfir 15% arðsemi eiginfjár. Rekstrarhorfur Skaga fyrir fjárhagsárið 2026 eru eftirfarandi: Samsett hlutfall í tryggingarekstri: 92-95%, markmið 3.500m Ávöxtun fjárfestingasafns: Markmið >9,5% Upplýst verður um horfur í samsettu hlutfalli í tryggingastarfsemi, og tekjum í fjármálastarfsemi ef þær breytast frá þeim vikmörkum sem kynnt eru. Vænt ávöxtun ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Viðskipti stjórnenda

SKAGI: Viðskipti stjórnenda Meðfylgjandi er tilkynning um viðskipti stjórnenda hjá Skaga vegna nýtingar kauprétta.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um nýtingu kauprétta og hækkun hlutafjár

SKAGI: Tilkynning um nýtingu kauprétta og hækkun hlutafjár Líkt og tilkynnt var um þann 3. desember 2024 eru í gildi kaupréttarsamningar við starfsfólk Skaga og dótturfélaga. Kaupréttarsamningarnir voru gerðir í samræmi við kaupréttaráætlun byggðri á 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem útfærð var af stjórn Skaga í júní 2024 og samþykkt af Skattinum í október sama ár. Fyrsta innlausnartímabilinu samkvæmt kaupréttarsamningunum er nú lokið og bárust félaginu tilkynningar um nýtingu kaupréttar sem taka til samtals 9.379.970 hluta í félaginu á genginu 18,85 krónur á hvern hlut eða fyrir ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Flöggun Íslandssjóðir hf.

SKAGI: Flöggun Íslandssjóðir hf. Sjá meðfylgjandi flöggunartilkynningu: Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKAGI: Flöggun Íslandsbanki hf.

SKAGI: Flöggun Íslandsbanki hf. Sjá meðfylgjandi flöggunartilkynningu: Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch