A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Guðný Helga ráðin forstjóri

VÍS: Guðný Helga ráðin forstjóri

Gengið hefur verið frá ráðningu Guðnýjar Helgu Herbertsdóttur í starf forstjóra VÍS  ̶   en hún hefur verið starfandi forstjóri síðan 10. janúar sl.  

Guðný Helga hefur verið í framkvæmdastjórn félagsins síðan 2017. Hún hefur frá síðasta vori starfað sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustu en var áður framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar. Hún hóf störf hjá félaginu árið 2016 sem markaðsstjóri. Guðný Helga hefur verið í leiðandi hlutverki í stefnumótun félagsins á undanförnum árum. Hún stýrði stafrænni umbreytingu félagsins og innviða uppbyggingu í upplýsingatæknimálum. Hún hefur leitt stefnumarkandi verkefni s.s. Ökuvísi, þróun þjónustugáttar félagsins og nýtt vildarkerfi.

Guðný Helga er með stjórnunargráðu (AMP) frá Viðskiptaháskólanum IESE í Barcelona á Spáni. Hún er jafnframt með meistaragráðu frá Viðskiptaháskólanum í Árósum í Danmörku og B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Í síðustu viku var tilkynnt um viðræður VÍS og Fossa um kaup á hlutafé þess síðarnefnda. Guðný Helga mun leiða tryggingahluta starfseminnar í sameinuðu félagi.

Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS:

„Framundan eru spennandi tímar hjá félaginu þar sem aukin áhersla er lögð á sókn þess. Guðný Helga kom inn í nýtt hlutverk í upphafi árs af festu og öryggi og nýtur mikils trausts, bæði stjórnar og starfsfólks. Ég tel að hún sé sú rétta til þess að leiða tryggingafélagið til framtíðar. Guðný Helga hefur starfað hjá félaginu undanfarin rúm sex ár og hefur tekið þátt í þróun og stefnumótun þess. Þekking hennar, reynsla og styrkleikar eiga eftir að leika lykilhlutverk í vegferðinni framundan  ̶  enda er hún framúrskarandi stjórnandi. Ég hlakka til áframhaldandi samstarfs.“

Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS:

„Undanfarin ár hefur VÍS tekið miklum breytingum. Stafræn þróun hefur verið á fullri ferð og alger umbreyting átt sér stað hjá félaginu. Nú taka við ný og spennandi verkefni. Tryggingar skipta okkur öll miklu máli  ̶  því rétt vernd getur skipt sköpum í lífi okkar allra. Það er okkar verkefni að gera tryggingar skiljanlegar og aðgengilegar. Við munum halda áfram að breyta því hvernig tryggingar virka og hafa hugrekki til þess að fara ótroðnar slóðir. VÍS er öflugt félag sem býr yfir framúrskarandi mannauði  ̶  og nú tökum við enn stærri skref til móts við nýja tíma með hagsmuni viðskiptavina okkar að leiðarljósi. Ég hlakka til vegferðarinnar sem er framundan.“

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu

Viðhengi



EN
24/02/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 15 Í 15.  viku 2026 keypti Skagi 1.200.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 20.800.000 eins og hér segir: VikaDagsTímiKeyptirhlutirViðskipta-verðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskiptiVika 158.4.202609:47400.00017,5      7.000.000     22.750.000Vika 159.4.202609:41400.00017,4      6.960.000     23.150.000Vika 1510.4.202609:41400.00017,1      6.840.000     23.550.000Samtals  1.200.000 20.800.000  Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 2. mars 2026, sbr. tilkynn...

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í sa...

Leiðrétting: SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 14 Í 14.  viku 2026 keypti Skagi 1.350.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 22.835.000 eins og hér segir: VikaDagsTímiKeyptirhlutirViðskipta-verðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskiptiVika 1430.03.202613:55500.00016.608.300.00021.500.000Vika 1401.04.202609:40450.00017,107.695.00021.950.000Vika 1407.04.202610:27400.00017,106.840.00022.350.000 Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 2. mars 2026, sbr. tilkynningu á markað 23. febrúar 2026. Áætlað er ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 14 Í 14.  viku 2026 keypti Skagi 1.350.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 22.835.000 eins og hér segir: VikaDagsTímiKeyptirhlutirViðskipta-verðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskiptiVika 1430.03.202613:55500.00016.608.300.00021.500.000Vika 1401.04.202609:40450.00071,17.695.00021.950.000Vika 1407.04.202610:27400.00071,16.840.00022.350.000 Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 2. mars 2026, sbr. tilkynningu á markað 23. febrúar 2026. Áætlað er að kaupa allt a...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 13 Í 13.  viku 2026 keypti Skagi 2.800.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 46.995.000 eins og hér segir: VikaDagsTímiKeyptirhlutirViðskipta-verðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskiptiVika 1323.3.202610:43650.00016,50    10.725.000     18.850.000Vika 1324.3.202609:59650.00016,80    10.920.000     19.500.000Vika 1325.3.202609:32500.00017,00      8.500.000     20.000.000Vika 1326.3.202610:29500.00016,90      8.450.000     20.500.000Vika 1327.3.202609:32500.00016,80      8.400.000     21.000.000 Kaupi...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 12 SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 12 Í 12.  viku 2026 keypti Skagi 3.350.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 57.625.000 eins og hér segir: VikaDagsTímiKeyptirhlutirViðskipta-verðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskiptiVika 1216.3.202609:53650.00017,6011.440.00015.500.000Vika 1217.3.202604:00650.00017,6011.440.00016.150.000Vika 1218.3.202611:20650.00017,0011.050.00016.800.000Vika 1219.3.202611:52700.00016,9511.865.00017.500.000Vika 1220.3....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch