VÍS: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun– lok endurkaupa
Í 5. viku 2023 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 1.650.000 eigin hluti fyrir kr. 30.902.500 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
30.1.2023 | 09:33:00 | 1.150.000 | 18,85 | 21.677.500 | 52.800.000 |
1.2.2023 | 10:06:21 | 500.000 | 18,45 | 9.225.000 | 53.300.000 |
1.650.000 | 30.902.500 | 53.300.000 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 16. nóvember 2022, sbr. tilkynningu á markað sama dag.
Endurkaupum samkvæmt áætluninni er nú lokið en VÍS hefur keypt samtals 53.300.000 hluti í félaginu sem samsvarar 53,30% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 946.877.500. VÍS á nú samtals 53.300.000 hluti eða 3,05% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.750.000.000.
Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 100.000.000 hlutir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
