A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Sameining VÍS og Fossa

VÍS: Sameining VÍS og Fossa

Vátryggingafélag Íslands (VÍS) og hluthafar Fossa fjárfestingarbanka (Fossar) hafa nú undirritað kaupsamning um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum. Kaupin eru gerð á grundvelli viljayfirlýsingar um sameiningu félaganna. Í kaupsamningi kemur fram að hluthafar Fossa fái 245 milljón nýja hluti í VÍS sem endurgjald, eða sem nemur 12,62% hlutafjár í VÍS eftir hlutafjáraukningu, en nýtt hlutafé yrði háð sölubanni seljenda í þrjú ár frá uppgjöri. Kaupin eru háð skilyrðum, svo sem samþykki eftirlitsstofnana og samþykki hluthafafundar VÍS.

Nái viðskiptin fram að ganga verður sameinað félag öflugt fyrirtæki á fjármálamarkaði með víðtækar starfsheimildir til fjármálaþjónustu og í ákjósanlegri stöðu til sóknar. Sameinað félag byggir á 106 ára sögu, breiðum viðskiptamannagrunni, sterkum efnahagi og er með víðtæk tengsl við atvinnulíf og fjármálamarkaði. Þetta eru öflugir innviðir fyrir framúrskarandi þjónustu á sviði trygginga, fjárfestingarbanka, einkabanka, sjóða- og eignastýringar og annarrar sérhæfðrar fjármálaþjónustu. Horft er til þess að áhrif af sameiningu felist fyrst og fremst í tækifærum til vaxtar og sóknar frekar en kostnaðarhagræðingu.

Þegar viðskiptin eru frágengin verður Haraldur Þórðarson ráðinn forstjóri VÍS samhliða Guðnýju Helgu Herbertsdóttur. Haraldur mun bera ábyrgð á framtíðarskipulagi samstæðunnar, fjármögnun og þróun fjármálastarfsemi og mun Guðný Helga bera ábyrgð á tryggingarekstri.

Framtíðarskipulag samstæðunnar er enn í mótun en þar verður lögð áhersla á arðsaman vöxt, að auka og efla tekjustoðir, stjórnarhætti og samnýtingu rekstrarþátta.  Stefnt er að því að Haraldur Þórðarson stýri rekstri samstæðunnar, Guðný Helga Herbertsdóttir stýri tryggingarekstrinum, Steingrímur Arnar Finnsson fjárfestingarbankastarfseminni og Arnór Gunnarsson SIV eignastýringu.

Hluthafafundur VÍS verður boðaður innan þriggja vikna þar sem óskað verður eftir samþykki hluthafa. Með fundarboðinu munu fylgja ítarlegar upplýsingar um forsendur kaupanna, áherslur og framtíðarsýn félaganna. 

Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS: 

„Við leggjum ríka áherslu á að VÍS taki virkan þátt í hraðri þróun fjármálastarfsemi hér á landi og nýti tækifæri til vaxtar. VÍS er í góðri stöðu til þess og byggir á traustum grunni. Við fögnum því að samningar hafi náðst milli VÍS og Fossa því ég tel að sameiningin muni styrkja félögin og efla tekjustoðir þeirra. Framundan eru því spennandi tímar hjá sameinuðu félagi.“  

Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka: 

„Það er mikið gleðiefni að þessi öflugu félög leiði nú saman hesta sína og leggi grunninn að leiðandi fjármálafyrirtæki. Sameinað félag mun búa að langri og farsælli sögu í tryggingarekstri, framsækni í fjármálaþjónustu og verður í sterkri stöðu til frekari vaxtar á íslenskum fjármálamarkaði. Framundan er spennandi verkefni sem felst í því að virkja styrkleika beggja félaga til áframhaldandi sóknar á sviði tryggingarekstrar, eignastýringar og fjárfestingarbankastarfsemi.”

Frekari upplýsingar veitir:

Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með tölvupósti



EN
05/05/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025 Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Á...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör ársins.   Hægt verður að fylgjast með fundinum á . Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.    

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch