VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í janúar 2021
Samsett hlutfall* í janúar 2021 var 103,8%. VÍS greiddi viðskiptavinum sínum rúman milljarð króna í tjónabætur** í janúar. Ávöxtun fjárfestingaeigna í janúar var 0,8%.
Búið er að taka tillit til mögulegrar bótaskyldu vegna vatnstjónsins sem varð í Háskóla Íslands í janúar. Enn er verið að meta umfang tjónsins og bótaskyldu. Áhrif tjónsins, að teknu tilliti til endurtrygginga, nemur um 8% af samsettu hlutfalli janúarmánaðar.
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum tímabilsins samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Seðlabanka Íslands, fjármálaeftirlits nr. 1/2020.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast á milli mánaða.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með tölvupósti