A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í mars 2020

VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í mars 2020

Samsett hlutfall* í mars var 124,3% og það sem af er ári, 125,8%. Vakin er athygli á því að samsetta hlutfallið er nú reiknað samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem birt voru þann 18. mars 2020, en samkvæmt tilmælunum skal ekki taka tillit til vaxta og gengisbreytinga í samsettu hlutfalli.

Hátt samsett hlutfall fjórðungsins skýrist af nokkrum þáttum. Óveður, snjóflóð og alvarleg bílslys settu mark sitt á þennan tjónaþunga fjórðung. Matsbreytingar eldri slysatjóna og stærri munatjóna hafa einnig neikvæð áhrif á fjórðunginn. Matsbreytingar síðustu ára hafa viðvarandi verið neikvæðar, sér í lagi í líkamstjónum ökutækja. Til að lágmarka neikvæða matsþróun til framtíðar hefur félagið aðlagað aðferðafræði við mat á tjónaskuld og styrkt hana samantekið um 700 milljónir kr. í fjórðungnum.  

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum rúma 2 milljarða króna í tjónabætur** í mars og hefur greitt viðskiptavinum sínum um 4,9 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.

Ávöxtun fjárfestingaeigna í mars var neikvæð um 1,6%. Ávöxtun fjárfestingaeigna frá áramótum (janúar, febrúar og mars) er neikvæð um 0,5%.

*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Seðlabanka Íslands, fjármálaeftirlits nr. 1/2020.

**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast á milli mánaða.

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu

EN
20/04/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

Skagi: Breytingar á viðskiptavakt - nýir samningar um viðskiptavakt vi...

Skagi: Breytingar á viðskiptavakt - nýir samningar um viðskiptavakt við Arion banka hf. og Landsbankann hf. Skagi hf. hefur gert nýja samninga við Arion banka hf. og Landsbankann hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins, sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland. Samningarnir taka gildi frá og með 2. maí 2025. Samhliða hefur verið sagt upp samningi við Kviku banka hf. um viðskiptavakt. Uppsögnin tekur gildi í lok dags þann 30. apríl 2025. Tilgangur viðskiptavaktar er að efla seljanleika hlutabréfa Skaga hf., stuðla að virku og gagnsæju viðskiptaumhverfi og bæta verðmyndun hlutabréfanna. ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Uppgjör Skaga hf. á 1. ársfjórðungi 2025

SKAGI: Uppgjör Skaga hf. á 1. ársfjórðungi 2025 Góður taktur í grunnrekstri en neikvæð afkoma fjárfestinga litar niðurstöðurAfkoma 1F 2025 hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 1F 2025 Tap eftir skatta nam 1.353 mkr. (1F 2024:+136 mkr.).Neikvæðar fjárfestingatekjur og fjármagnsliðir draga afkomu samanlagt niður um 1.019 mkr. Þar af voru fjárfestingatekjur neikvæðar um 497 mkr., sem kemur til að mestu vegna lækkunar skráðra hlutabréfa um 1.063 m.kr.Áframhaldandi góður taktur í tryggingastarfsemi með 10,9% tekjuvöxt á milli ára. Samsett hlutfall 100,7% (1F 2024: 103,6%) og batnar um 2,9 ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 og kynningarfundur

SKAGI: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 og kynningarfundur Skagi mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða þann 29. apríl næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs 29. apríl, klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri félagsins, mun kynna uppgjör fjórðungsins.   Hægt verður að fylgjast með fundinum á . Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.    

 PRESS RELEASE

SKAGI: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (SFCR) 2024

SKAGI: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (SFCR) 2024 Skagi (áður Vátryggingafélag Íslands) hefur  gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu vegna vátryggingastarfsemi á árinu 2024. Í skýrslunni eru ítarlegar upplýsingar um starfsemi félagsins, gjaldþol og fjárhagslega stöðu. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016. Í skýrslunni eru veittar upplýsingar sem er ætlað að auka skilning á starfsemi félagsins. Fjallað er um stjórnkerfi félagsins, rekstur og afkomu af vátryggingastarfsemi og fjármálastarfsemi, skipulag og framkvæmd áhæt...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Niðurstöður aðalfundar þann 27. mars 2025

SKAGI: Niðurstöður aðalfundar þann 27. mars 2025 Aðalfundur Skaga hf. var haldinn fimmtudaginn 27. mars 2025. Meðfylgjandi er samantekt á niðurstöðum fundarins. Jafnframt eru meðfylgjandi uppfærðar samþykktir og samþykkt starfskjarastefna vegna ársins 2025. Eftirfarandi aðilar voru kjörnir í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár og hafa stjórnarmenn skipt með sér verkum.  Stjórnin er skipuð með eftirfarandi hætti: Aðalstjórn: Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar Hrund Rudolfsdóttir Marta Guðrún Blöndal Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch