VÍS: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (SFCR) 2020
VÍS hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu fyrir árið 2020. Í skýrslunni eru ítarlegar upplýsingar um starfsemi félagsins, gjaldþol og fjárhagslega stöðu. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.
Með útgáfu skýrslunnar eru markaðsaðilum veittar upplýsingar sem er ætlað að auka skilning á starfsemi félagsins. Þar er fjallað um stjórnkerfi félagsins, rekstur og afkomu af vátryggingastarfsemi og fjármálastarfsemi, skipulag og framkvæmd áhættustýringar, innri stjórnun og eftirlitskerfi, áhættusnið og aðferðir við mat á gjaldþolsstöðu og eiginfjárstýringu.
Skýrsluna má finna í viðhengi og á vefslóðinni: .
Viðhengi