A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar – endurkaup hefjast

VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar – endurkaup hefjast

Á aðalfundi VÍS 19. mars 2021 sl. var samþykkt að heimila stjórn að setja upp formlega endurkaupaáætlun, í þeim tilgangi að kaupa allt að 10% af hlutafé félagsins á næstu 12 mánuðum.

Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess, sbr. tilkynningu frá félaginu 23. júní sl. 

Félaginu barst í dag samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („Fjármálaeftirlitið“) og munu endurkaup hefjast þegar í stað. Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir er 35.000.000 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 1,85% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.894.462.192 að nafnvirði. Heimildin gildir frá og með deginum í dag. 

Endurkaupin verða framkvæmd af Íslenskum fjárfestum hf. sem taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 1.500.000 hlutir að nafnverði, sem er innan við fjórðungur af meðalveltu síðustu fjögurra vikna. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir. 

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram. Fyrir á félagið 59.462.192 eigin hluti. 



Nánari upplýsingar: 

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með tölvupósti á  



EN
08/07/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2026

SKAGI: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2026 Stjórn Skaga hf. hefur boðað til aðalfundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, þriðjudaginn 17. mars 2026. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Fundurinn hefst kl. 16:00. Endanleg dagskrá er í viðhengi. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja aðalfundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á skráningarsíðu fundarins: Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 15. mars, eða tveimur dögum fyrir aðalfund. Með innskráning...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 10 Í 10. viku 2026 keypti Skagi 2.117.312 eigin hluti að kaupverði alls kr. 39.158.638 eins og hér segir: VikaDagsetningTímiKeyptir hlutir ViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti Vika 102.3.202615:30350.00018,706.545.00010.682.688Vika 103.3.202609:43367.31218,556.813.63811.050.000Vika 104.3.202610:24400.00018,507.400.00011.450.000Vika 105.3.202613:30500.00018,409.200.00011.950.000Vika 106.3.202610:33500.00018,409.200.00012.450.000Samtals  2.117.312 39.158.638  Kaupin eru í samræmi við e...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch