A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Uppgjör 1. ársfjórðungs 2020

VÍS: Uppgjör 1. ársfjórðungs 2020



Árshlutareikningur félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 29. apríl 2020.



Helstu niðurstöður fyrsta ársfjórðungs 2020.

- Tap tímabilsins eftir skatta nam 1.963 m.kr. samanborið við hagnað upp á 936 m.kr. á sama tímabili 2019.

- Iðgjöld tímabilsins voru 5.592 m.kr. en voru 5.572 m.kr. á sama tímabili í fyrra.

- Fjárfestingatekjur voru neikvæðar um 162 milljónir en jákvæðar um 1.367 m.kr. á sama tímabili í fyrra.

- Arðsemi eigin fjár var neikvæð um 13,8% en jákvæð um 6,5% á sama tímabili 2019.

- Tap  á hlut var 1,04 krónur samanborið við hagnað á hlut upp á 0,49 krónur á sama tímabili 2019.



Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.



Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS:

„Fyrsti fjórðungur ársins var einn sá versti í sögu félagsins og nam tap tímabilsins 1.963 milljónum kr. Óveður, snjóflóð og alvarleg bílslys settu mark sitt á þessa tjónaþungu mánuði. Matsþróun og styrking tjónaskuldar hafði einnig áhrif á fjórðunginn. Samsett hlutfall fjórðungsins var 125,8%. Vakin er athygli á því að samsetta hlutfallið er nú reiknað samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem birt voru þann 18. mars 2020, en samkvæmt tilmælunum skal ekki taka tillit til vaxta- og gengisbreytinga í samsettu hlutfalli. Áhrifin eru 8,2% til lækkunar á samsettu hlutfalli í fjórðungnum.

Aðferðafræði við að reikna mat á tjónaskuld var aðlöguð í fjórðungnum þar sem matsbreytingar síðustu ára hafa viðvarandi verið neikvæðar, sér í lagi í líkamstjónum. Vegna þessa hefur félagið styrkt tjónaskuldina samantekið um 700 milljónir króna í fjórðungnum.

 

Óvissa á fjármálamörkuðum

Ársfjórðungurinn var erfiður á verðbréfamörkuðum sem skilaði sér í neikvæðum fjárfestingatekjum að fjárhæð 162 m.kr. eða 0,5% neikvæðri ávöxtun fjárfestingaeigna. Lækkun skráðra hlutabréfa hafði þar mest áhrif en auk þess hafði virðislækkun framtakssjóða og erlendra skuldabréfasjóða neikvæð áhrif. Á móti skiluðu fjárfestingar félagsins í óverðtryggðum ríkisskuldabréfum og sértryggðum skuldabréfum jákvæðri afkomu. Þess má geta að eignarhlutur félagsins í ferðaþjónustu beint og óbeint í gegnum sjóði er um 580 m.kr., þar af eign í Bláa lóninu um 470 m.kr.



Til staðar fyrir viðskiptavini á erfiðum tímum

Mikil óvissa er framundan vegna COVID-19 og erfitt er að meta hversu lengi hún varir. Erfiðar horfur í efnahagslífinu og á vinnumarkaði gera það að verkum að við höfum ákveðið að leggja alla áherslu á að vera til staðar fyrir viðskiptavini okkar, bæði fyrirtæki og einstaklinga. Í því felst t.a.m. að veita viðskiptavinum okkar greiðslufresti og ráðgjöf um tryggingavernd í breyttum aðstæðum. Stærsta verkefni okkar og annarra samfélagslega ábyrgra fyrirtækja er að bregðast við þessum fordæmalausu aðstæðum á ábyrgan hátt því óvissunni í íslensku efnahagslífi er því miður hvergi nærri lokið.



Þjónustan færð á netið

Sú stafræna umbylting sem hefur átt sér stað hjá félaginu á undanförnum tveimur árum gerði það að verkum að við gátum brugðist hratt við breyttu landslagi vegna COVID-19. Við færðum þjónustuna okkar alfarið á netið um miðjan marsmánuð  og langar mig að þakka viðskiptavinum okkar fyrir að bregðast vel við þeirri breytingu. Þeir hafa óhikað nýtt sér stafrænar lausnir félagsins og er nú annað árið í röð nær 100% aukning á innskráningum í þjónustugáttina okkar. Þá var einnig sett met í hlutfalli rafrænna tjónstilkynninga í fjórðungnum en um helmingur allra tjóna eru nú tilkynnt rafrænt.



Viðskiptavinir styrkja góð málefni

Ég er stoltur af því að viðskiptavinir okkar hafa nú val um að styrkja góðgerðarfélög þegar þeir kaupa líf- og sjúkdómatryggingar hjá okkur á netinu. Valið stendur milli þriggja góðgerðarfélaga sem eru Kraftur, MS félag Íslands og Hjartaheill. Á skömmum tíma hafa þeir viðskiptavinir okkar sem velja þessa leið við að tryggja líf og heilsu safnað myndarlegri upphæð fyrir þessi góðgerðarfélög.



Þrátt fyrir fordæmalaust ástand í byrjun árs hef ég fulla trú á því að sumarið hafi í för með sér bjartari tíma fyrir okkur og samfélagið í heild.“



Horfur

Félagið hefur ekki gefið út nýja spá fyrir heildarafkomu ársins þar sem mikil óvissa ríkir í íslensku efnahagslífi. Félagið gerir nú ráð fyrir því að samsett hlutfall ársins 2020 verði á bilinu 102% - 105%.



Kynningarfundur

Rafrænn fundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl kl. 08.30. Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, kynnir uppgjör félagsins og svarar spurningum.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni:

Fundurinn verður í beinni útsendingu með fjarfundarbúnaði Cisco Webex. Hægt er að tengjast fundinum með vafra eða hlaða niður hugbúnaði frá Cisco. Nánari leiðbeiningar um hvernig eigi að tengjast fundinum má finna á vefslóðinni:

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér:

Fjárhagsdagatal

Viðburður  Dagsetning

2. ársfjórðungur  20. ágúst 2020

3. ársfjórðungur  22. október 2020

Ársuppgjör 2020 25. febrúar 2021



Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660 5260 eða með netfanginu

Viðhengi

EN
29/04/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 13 Í 13.  viku 2026 keypti Skagi 2.800.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 46.995.000 eins og hér segir: VikaDagsTímiKeyptirhlutirViðskipta-verðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskiptiVika 1323.3.202610:43650.00016,50    10.725.000     18.850.000Vika 1324.3.202609:59650.00016,80    10.920.000     19.500.000Vika 1325.3.202609:32500.00017,00      8.500.000     20.000.000Vika 1326.3.202610:29500.00016,90      8.450.000     20.500.000Vika 1327.3.202609:32500.00016,80      8.400.000     21.000.000 Kaupi...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 12 SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 12 Í 12.  viku 2026 keypti Skagi 3.350.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 57.625.000 eins og hér segir: VikaDagsTímiKeyptirhlutirViðskipta-verðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskiptiVika 1216.3.202609:53650.00017,6011.440.00015.500.000Vika 1217.3.202604:00650.00017,6011.440.00016.150.000Vika 1218.3.202611:20650.00017,0011.050.00016.800.000Vika 1219.3.202611:52700.00016,9511.865.00017.500.000Vika 1220.3....

 PRESS RELEASE

SKAGI: Viðskipti stjórnanda

SKAGI: Viðskipti stjórnanda Meðfylgjandi er tilkynning um viðskipti stjórnanda hjá Skaga hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um hækkun hlutafjár

SKAGI: Tilkynning um hækkun hlutafjár Vísað er til fréttatilkynningar sem birt var þann 6. janúar 2026 vegna ákvörðunar stjórnar Skaga um að nýta kauprétt að 14,1% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. af minnihlutaeigendum félagsins. Einnig er vísað til fréttatilkynningar sem birt var fyrr í dag um niðurstöður aðalfundar félagsins, þar sem fram kemur að hluthafafundur hafi samþykkt að veita stjórn heimild til að hækka hlutafé um 24.231.800 hluti vegna uppgjörs kaupréttarins. Stjórn Skaga hefur nú ákveðið að nýta heimild samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í viðauka I við samþykktir félagsins til að h...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Niðurstöður aðalfundar þann 17. mars 2026

SKAGI: Niðurstöður aðalfundar þann 17. mars 2026 Aðalfundur Skaga hf. var haldinn þriðjudaginn 17. mars 2026. Meðfylgjandi er samantekt á niðurstöðum fundarins. Jafnframt eru meðfylgjandi uppfærðar samþykktir, samþykkt starfskjarastefna vegna ársins 2026, ávarp stjórnarformanns við skýrslu stjórnar um starfsárið og kynning á ársreikningi. Eftirfarandi aðilar voru kjörnir í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár og hafa stjórnarmenn skipt með sér verkum.  Stjórnin er skipuð með eftirfarandi hætti: Aðalstjórn: Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður Vilhjálmur Egilsson, varaformaður st...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch