A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Viðræður um sameiningu VÍS og Fossa fjárfestingarbanka

VÍS: Viðræður um sameiningu VÍS og Fossa fjárfestingarbanka

Vátryggingafélag Íslands (VÍS) og hluthafar Fossa fjárfestingarbanka hafa ákveðið að hefja viðræður um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum fjárfestingarbanka á grundvelli viljayfirlýsingar um sameiningu félaganna. Félögin telja að fyrirhuguð sameining muni styrkja þau til sóknar á spennandi tímum á fjármálamarkaði. 

Gert er ráð fyrir að hluthafar Fossa fjárfestingarbanka fái 260 milljón nýja hluti í VÍS fyrir hlutabréf sín, sem nemur 13,3% hlutafjár í VÍS eftir hlutafjáraukningu. Kaupin yrðu háð ýmsum skilyrðum, svo sem niðurstöðu áreiðanleikakannana, samþykki eftirlitsstofnana og samþykki hluthafafundar VÍS.

Sameinað félag yrði öflugt fjármálafyrirtæki í sterkri stöðu til þess að nýta sér vaxtarmöguleika á markaði. Það myndi búa yfir fjárhagslegum styrk, afburða starfsfólki og sterkum innviðum fyrir framúrskarandi þjónustu á sviði trygginga, lánveitinga, miðlunar, fyrirtækjaráðgjafar, eignastýringar, sjóðastýringar og sérhæfðrar fjármálaþjónustu.

Í upphafi er lagt upp með að Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, og Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka, muni sameiginlega leiða félagið. Framtíðarskipulag samstæðu verður skoðað á næstu vikum, m.t.t. vaxtar, stjórnarhátta og hagræðingar.

Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS:

„Hröð samfélags- og tækniþróun með aukinni fjártækni, nýrri samkeppni og dreifileiðum á markaði hefur umbreytt samkeppnisumhverfi trygginga- og fjármálamarkaða. VÍS er í sterkri stöðu til að mæta og taka þátt í þessari þróun. Mikilvægt er að félagið sé skrefinu á undan og verði virkur þátttakandi í þróun fjármálastarfsemi hér landi, með áherslu á arðsaman vöxt og eignastýringu. Fyrsta skrefið í að víkka út starfsemi félagsins á fjármálamarkaði var stofnun SIV eignastýringar ─ en með sameiningu við Fossa fjárfestingarbanka eru tekin markviss skref í átt að framtíðarsýninni, sem er að verða spennandi valkostur á íslenskum fjármálamarkaði, ásamt því að auka og efla tekjustoðir félagsins.“

Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka:

„Fossar fjárfestingarbanki hefur verið í sókn undanfarin ár og hefur þjónustað innlenda sem og erlenda fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Á síðasta ári fékk félagið fjárfestingarbankaleyfi sem fól í sér aukin tækifæri í þjónustu og umsvifum á fjármálamarkaði. Sameining VÍS og Fossa fjárfestingarbanka felur í sér spennandi tækifæri ─ enda eru félögin í ákjósanlegri stöðu til vaxtar á íslenskum fjármálamarkaði.“

Frekari upplýsingar veita:

Stefán H. Stefánsson, stjórnarformaður VÍS, netfang:  og í síma: 820-6303

Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka, netfang: og í síma: 832-4001



EN
15/02/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

Skagi: Uppgjör Skaga á 2. ársfjórðungi 2025

Skagi: Uppgjör Skaga á 2. ársfjórðungi 2025         17. júlí 2025 Besti fjórðungur tryggingastarfsemi VÍS frá skráningu Fjárfestingartekjur lita áfram afkomu Afkoma 2F og H1 2025 hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2F 2025 Samstæðan Hagnaður eftir skatta nam 972 m.kr. (2F 2024: 137 m.kr.).Hagnaður á hlut nam 0,51 kr. á tímabilinu.Arðsemi eigin fjár var 18,4% á ársgrundvelli (2F 2024: 2,7%) og gjaldþol samstæðu var 1,28 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 21.393 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Áframhaldandi tekjuvöxtur í tryggingastarfsemi VÍS sem óx um 8,9% á ...

 PRESS RELEASE

Skagi: Uppfærðar rekstrarhorfur fyrir rekstrarárið 2025

Skagi: Uppfærðar rekstrarhorfur fyrir rekstrarárið 2025 Drög að uppgjöri fyrri árshelmings ársins 2025 benda til þess að samsett hlutfall í tryggingastarfsemi VÍS á tímabilinu sé 90,6% sem er talsvert betra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í áður birtum rekstrahorfum fyrir árið 2025 í heild var áætlað að samsett hlutfall yrði á bilinu 93-96% með markmið um að vera undir 94%. Með vísan til þessa telur félagið rétt að uppfæra rekstrarhorfur í tryggingastarfsemi þannig að áætlað er að samsett hlutfall ársins verði á bilinu 92-95%. Áhrifaþættir á samsett hlutfall fyrri árshelmings eru m.a. eftirfa...

 PRESS RELEASE

Skagi: Uppfært fjárhagsdagatal Skaga fyrir fjárhagsárið 2025

Skagi: Uppfært fjárhagsdagatal Skaga fyrir fjárhagsárið 2025 Fjárhagsdagatali Skaga sem birt var þann 18. desember 2024 hefur verið breytt og er uppfært dagatal með eftirfarandi hætti: Fjárhagsdagatal: 2. ársfjórðungur 2025 (árshlutareikningur)             fimmtudagur 17. júlí 2025 3. ársfjórðungur 2025 (árshlutareikningur)             miðvikudagur 29. október 2025          Ársuppgjör 2025                                                     miðvikudagur 18. febrúar 2026          Aðalfundur 2026                                                     þriðjudagur 17. mars 2026 Vakin er athy...

 PRESS RELEASE

Skagi: Breytingar á viðskiptavakt - nýir samningar um viðskiptavakt vi...

Skagi: Breytingar á viðskiptavakt - nýir samningar um viðskiptavakt við Arion banka hf. og Landsbankann hf. Skagi hf. hefur gert nýja samninga við Arion banka hf. og Landsbankann hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins, sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland. Samningarnir taka gildi frá og með 2. maí 2025. Samhliða hefur verið sagt upp samningi við Kviku banka hf. um viðskiptavakt. Uppsögnin tekur gildi í lok dags þann 30. apríl 2025. Tilgangur viðskiptavaktar er að efla seljanleika hlutabréfa Skaga hf., stuðla að virku og gagnsæju viðskiptaumhverfi og bæta verðmyndun hlutabréfanna. ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Uppgjör Skaga hf. á 1. ársfjórðungi 2025

SKAGI: Uppgjör Skaga hf. á 1. ársfjórðungi 2025 Góður taktur í grunnrekstri en neikvæð afkoma fjárfestinga litar niðurstöðurAfkoma 1F 2025 hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 1F 2025 Tap eftir skatta nam 1.353 mkr. (1F 2024:+136 mkr.).Neikvæðar fjárfestingatekjur og fjármagnsliðir draga afkomu samanlagt niður um 1.019 mkr. Þar af voru fjárfestingatekjur neikvæðar um 497 mkr., sem kemur til að mestu vegna lækkunar skráðra hlutabréfa um 1.063 m.kr.Áframhaldandi góður taktur í tryggingastarfsemi með 10,9% tekjuvöxt á milli ára. Samsett hlutfall 100,7% (1F 2024: 103,6%) og batnar um 2,9 ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch