ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Advanz Pharma semur við Alvotech um markaðssetningu í Evrópu á hliðstæðu við líftæknilyfið Cimzia

Advanz Pharma semur við Alvotech um markaðssetningu í Evrópu á hliðstæðu við líftæknilyfið Cimzia

REYKJAVÍK og LONDON, BRETLANDI (1. júlí 2025) - Alvotech (NASDAQ: ALVO) og Advanz Pharma tilkynntu í dag að félögin hafi gert með sér samning um markaðssetningu AVT10 í Evrópu. AVT10 er hliðstæða við líftæknilyfið Cimzia (certolizumab pegol) sem þróun stendur yfir á hjá Alvotech. Alþjóðlega lyfjafyrirtækið Advanz Pharma er með höfuðstöðvar í Bretlandi og markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum.

„Við erum eina fyrirtækið sem vinnur að þróun hliðstæðu við Cimzia, samkvæmt opinberum heimildum. Frumlyfið hefur náð umtalsverðri markaðshlutdeild í flokki gigtarlyfja, sérstaklega fyrir konur á barneignaraldri. Það er okkur mikil ánægja að Advanz Pharma hafi sóst eftir því að fá að markaðssetja þessa hliðstæðu sem bætist við stórt safn lyfja sem félögin eiga í samstarfi um,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

„Þessi nýi samningur styrkir enn samstarfið við Alvotech og styður við markmið okkar sem er aukið aðgengi sjúklinga í Evrópu að líftæknilyfjum í hæsta gæðaflokki. Fyrirhuguð hliðstæða við Cimzia er verðmæt viðbót við það stóra safn líftæknilyfja sem við ætlum að setja á markað á næstu árum,“ sagði Steffen Wagner, forstjóri Advanz Pharma.

Certolizumab pegol er líftæknilyf sem inniheldur einstofna mannamótefni sem hamlar virkni frumboðefnisins tumor necrosis factor alpha (TNF-alpha). Lyfið er notað til meðferðar við ýmsum bólgusjúkdómum á borð við liðagigt. Nýlegar klínískar rannsóknir á frumlyfinu sýna að það berst ekki til fósturs á meðgöngu eða með móðurmjólk. Heildartekjur af sölu Cimzia á síðasta ári voru um 280 milljarðar króna (2,3 milljarðar bandaríkjadala) samkvæmt upplýsingum frá gagnaveitunni Global Data.

Alvotech og Advanz Pharma hafa áður samið um þróun, framleiðslu og markaðssetningu fyrirhugaðra hliðstæða við meira en tíu mismunandi líftæknilyf. Félögin gera ráð fyrir að hefja sölu á fyrstu hliðstæðunum þegar á síðasta fjórðungi ársins.

Notkun vörumerkja

Cimzia er skráð vörumerki UCB Pharma S.A.

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd. (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja-Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indónesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Mið-Austurlönd og Norður-Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA, Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Frekari upplýsingar er að finna á , og almennri . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á , , og .

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson forstöðumaður



EN
01/07/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch