ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech birtir nýjar upplýsingar um stöðu umsóknar um markaðsleyfi fyrir AVT02 (adalimumab) í Bandaríkjunum

Alvotech birtir nýjar upplýsingar um stöðu umsóknar um markaðsleyfi fyrir AVT02 (adalimumab) í Bandaríkjunum

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefði staðfest að umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir AVT02 sem lögð hefur verið fram að nýju hafi verið tekin til afgreiðslu og er frestur eftirlitsins til að komast að niðurstöðu miðaður við 24. febrúar nk. AVT02 er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða í háum styrk með útskiptileika við Humira (adalimumab).

FDA skýrði jafnframt frá því að eftirlitið líti svo á að umsóknin veiti fullnægjandi svör við öllum athugasemdum stofnunarinnar í kjölfar úttektar á framleiðsluaðstöðu Alvotech í mars sl., með tilliti til þeirra viðbótarupplýsinga sem Alvotech lagði fram með umsóknargögnunum.

„Við erum staðráðin í að veita sjúklingum í Bandaríkjunum aðgengi að AVT02, enda er þörfin á hliðstæðu með útskiptileika við Humira í háum styrk  áfram brýn og slíkur kostur stendur sjúklingum ekki til boða,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech. „FDA hefur ekki gert athugasemdir við efni umsóknar okkar um markaðsleyfi aðrar en þær sem lúta að framleiðsluaðstöðunni. Við bíðum nú eftir frekari tilmælum frá FDA varðandi mögulega tímasetningu endurúttektar og teljum að hún geti farið fram innan þess frests sem eftirlitið hefur til að komast að niðurstöðu.“

Í Bandaríkjunum kveða reglur á um að líftæknilyfjahliðstæða þurfi að uppfylla skilyrði um útskiptileika, til þess að bjóða megi sjúklingum hliðstæðuna án þess að læknirinn sem ávísaði á frumlyfið gefi út nýjan lyfseðil. Sjúklingum í Bandaríkjunum stendur enn ekki til boða líftæknilyfjahliðstæða með útskiptleika við Humira í háum styrk.

Um AVT02 (adalimumab)

AVT02 er einstofna mótefni og hefur þegar hlotið markaðsleyfi sem líftæknilyfjahliðstæða við Humira (adalimumab) í 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins, á Íslandi, í Noregi, Liechtenstein, Bretlandi, Sviss, Kanada, Ástralíu, Egyptalandi og Sádi-Arabíu. Lyfið er komið á markað í fjölmörgum Evrópuríkjum og í Kanada. Umsóknir um markaðsleyfi eru til umsagnar í mörgum löndum.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, forstöðumaður fjárfestatengsla og samskiptasviðs

Benedikt Stefánsson



EN
20/09/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch