ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech gerir samninga um markaðssetningu á fyrirhuguðum hliðstæðum í Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi

Alvotech gerir samninga um markaðssetningu á fyrirhuguðum hliðstæðum í Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi

REYKJAVÍK (2. FEBRÚAR 2026) - Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að samningar hefðu náðst við svissneska lyfjafyrirtækið Sandoz, um sölu og markaðssetningu í Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi á nokkrum fyrirhuguðum hliðstæðum sem Alvotech þróar og framleiðir.

„Samningarnir við Sandoz eru liður í að tryggja aðgengi að helstu mörkuðum heims fyrir nýjar hliðstæður sem við erum að þróa, áður en markaðsleyfi er veitt,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech. „Við höfum lagt áherslu á að byggja upp fullkomna aðstöðu til að samþætta rannsóknir, þróun og framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum. Samningarnir staðfesta mikilvægi þessarar stefnu og sterka stöðu Alvotech innan iðnaðarins. Samvinna við söluaðila með sérþekkingu á viðkomandi mörkuðum gerir okkur kleift að auka aðgengi sjúklinga að hagkvæmum líftæknilyfjum um leið og við beitum aðhaldi í ráðstöfun fjármagns.“

Samningurinn um sölu í Kanada fjallar um fyrirhugaða hliðstæðu á sviði augnsjúkdóma, sem verður afhent í áfylltri sprautu. Fyrir Ástralíu og Nýja-Sjáland sömdu aðilarnir um sölu á þremur fyrirhuguðum hliðstæðum, til meðferðar við ónæmis- og meltingarsjúkdómum. Þær verða þróaðar í nokkrum mismunandi lyfjaformum. Sandoz mun sjá um að skrá hliðstæðurnar og markaðssetningu þeirra, í nánu samstarfi við Alvotech sem ber ábyrgð á allri lyfjaþróun, klínískum rannsóknum og framleiðslu og afhendir fullbúnar vörur. Félögin ætla að vinna að bættu aðgengi sjúklinga í viðkomandi löndum að hágæða líftæknilyfjum með því að tryggja markaðsleyfi fyrir hliðstæðurnar og með öflugri markaðssetningu.

Sandoz er svissneskt lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í samheitalyfjum og líftæknilyfjahliðstæðum. Félagið var stofnað árið 1886 en rann síðan saman 110 árum síðar við Ciba-Geigy svo úr varð Novartis. Sandoz nafnið var notað næstu árin sem vörumerki fyrir samheitalyf og líftæknilyfjahliðstæður innan samstæðunnar. Sandoz var svo klofið frá Novartis árið 2023 og haslaði sér aftur völl sem sjálfstætt félag.

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á , á og á . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á , , , og .

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson, forstöðumaður



EN
02/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch