ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech heldur kynningarfund fyrir fjárfesta 27. mars 2025, eftir birtingu uppgjörs fyrir árið 2024 og fjórða ársfjórðung

Alvotech heldur kynningarfund fyrir fjárfesta 27. mars 2025, eftir birtingu uppgjörs fyrir árið 2024 og fjórða ársfjórðung

Alvotech (NASDAQ: ALVO) birtir uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2024 og ársuppgjör 2024 miðvikudaginn 26. mars nk. eftir lokun markaða. Uppgjörsfundur með greinendum, sem sendur er út í beinum streymi, hefst kl. 12:00 á hádegi, fimmtudaginn 27. mars nk. Þá verður boðið upp á sérstakan kynningarfund fyrir innlenda fjárfesta sem hefst kl. 16:00, fimmtudaginn 27. mars nk., í aðalstöðvum Alvotech við Sæmundargötu 15-19. Á kynningarfundinum mun Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech fjalla um rekstur og afkomuspá félagsins.

Gestir sem hyggjast mæta á kynningarfundinum í Sæmundargötu 27. mars nk. kl. 16:00 eða vilja fylgjast með í beinu streymi eru beðnir um að skrá þátttöku hér: 

Streymi og upptaka af uppgjörsfundi með greinendum, sem hefst 27. mars nk. kl. 12:00, er einnig í boði. Nánari upplýsingar um skráningu má finna hér: 

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Tvær hliðstæður, við líftæknilyfið Humira (adalimumab) annarsvegar og Stelara (ustekinumab) hinsvegar, eru þegar á markaði eða hafa hlotið markaðsleyfi í fjölda landa um allan heim. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Meiri upplýsingar er að finna á , , og almennri . Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: , , og

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson, forstöðumaður



EN
24/02/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech Participates in the Goldman Sachs Global Healthcare Conferenc...

Alvotech Participates in the Goldman Sachs Global Healthcare Conference in Miami Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today its participation in the Goldman Sachs 46th Global Healthcare Conference, which will be held in Miami, Florida June 9-11, 2025. Members of the management team will host one-on-one meetings at the conference. Dr. Balaji Prasad, Chief Strategy Officer, will participate in a fireside chat on Wednesday June 11, 2025, at 8:00 am EDT (12:00 GMT / 14:00 CEST)...

 PRESS RELEASE

Alvotech tekur þátt í árlegri heilbrigðisráðstefnu Goldman Sachs fjárf...

Alvotech tekur þátt í árlegri heilbrigðisráðstefnu Goldman Sachs fjárfestingabankans í Miami Alvotech (NASDAQ: ALVO) tekur þátt í árlegri heilbrigðisráðstefnu Goldman Sachs fjárfestingabankans sem haldin verður í Miami dagana 9.-11. júní nk. Fulltrúar félagsins funda með einstökum fjárfestum og Dr. Balaji Prasad, framkvæmdastjóri stefnumótunar, situr fyrir svörum greinanda bankans og fjallar um nýjustu áfanga í starfsemi félagsins, miðvikudaginn 11. júní kl. 12:00 á hádegi. Hægt verður að hlusta útsendingu af kynningunni í beinu streymi. Þá verður upptaka aðgengileg á vefsíðu félagsins í 9...

 PRESS RELEASE

Alvotech Meets Investors and Presents at the Goldman Sachs Global Heal...

Alvotech Meets Investors and Presents at the Goldman Sachs Global Healthcare Conference in Miami REYKJAVIK, Iceland, June 06, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today its participation in the Goldman Sachs 46th Global Healthcare Conference, which will be held in Miami, Florida June 9-11, 2025. Members of the management team will host one-on-one meetings at the conference. Dr. Balaji Prasad, Chief Strategy Officer, will participate in a fireside ...

 PRESS RELEASE

Alvotech and Dr. Reddy’s Enter into Collaboration to Co-Develop Biosim...

Alvotech and Dr. Reddy’s Enter into Collaboration to Co-Develop Biosimilar Candidate to Keytruda® (pembrolizumab) HYDERABAD, INDIA & REYKJAVIK, ICELAND (June 5, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide (“Alvotech”), and Dr. Reddy’s Laboratories Ltd., (BSE: 500124 | NSE: DRREDDY | NYSE: RDY | NSEIFSC: DRREDDY, along with its subsidiaries hereafter referred to as “Dr. Reddy’s”), today announced that the companies have entered into a collaboration and license agreement to co-develop,...

 PRESS RELEASE

Alvotech og Dr. Reddys ganga til samstarfs um þróun hliðstæðu við krab...

Alvotech og Dr. Reddys ganga til samstarfs um þróun hliðstæðu við krabbameinslyfið Keytruda Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði gert samstarfssamning við Dr. Reddy’s Laboratories Ltd. (“Dr. Reddys”), alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar á Indlandi, um þróun, framleiðslu og markaðssetningu hliðstæðu við Keytruda (pembrolizumab), líftæknilyf sem notað er til meðferðar við ýmsum tegundum krabbameins. Keytruda er nú mest selda lyf heims, en á síðasta ári voru tekjur af sölu þess um 3.750 milljarðar króna (29,5 milljarðar dollara). Með samstarfinu geta félögin lækka...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch