ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech kaupir þróunarstarfsemi líftæknifyrirtækisins Xbrane í Svíþjóð

Alvotech kaupir þróunarstarfsemi líftæknifyrirtækisins Xbrane í Svíþjóð

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hafi keypt þróunarstarfsemi sænska líftæknifyrirtækisins Xbrane Biopharma AB (“Xbrane”). Með kaupunum eykur Alvotech afkastagetu sína í þróun nýrra líftæknilyfjahliðstæða, styrkir stöðu sína sem leiðandi afl á þessu sviði og haslar sér völl innan sænska líftæknigeirans. Alvotech tekur yfir aðstöðu og búnað Xbrane, við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og starfsfólk í þróunardeild fyrirtækisins. Með kaupunum eignast Alvotech jafnframt allt lyfjahugvit Xbrane tengt fyrirhugaðri hliðstæðu við Cimizia (certolizumab pegol). Alvotech mun ljúka við þróun lyfsins og stefnir að því að setja það á markað á árinu 2028. Samhliða kaupunum mun Alvotech í framhaldinu skoða mögulega skráningu í kauphöllinni í Stokkhólmi með útgáfu sænskra heimildaskírteina (SDR).

Helstu staðreyndir um kaupin

  • Alvotech kaupir rannsóknaraðstöðu og búnað Xbrane auk fyrirhugaðu hliðstæðunnar XB003.
  • Xbrane heldur réttindum að tveimur verkefnum og verður áfram skráð á markað.
  • Starfsmönnum Xbrane verða boðin störf í rannsóknar- og þróunardeild Alvotech í Stokkhólmi.
  • Umsamið kaupverð er 275 milljónir sænskra króna (um 3,6 milljarðar íslenskra króna) og verða 102,2 milljónir sænskra króna greiddar í reiðufé og 172,8 milljónir sænskra króna með yfirtöku skulda, en meirihluti þeirra eða 152,8 milljónir sænskra króna verður greiddur með eigin bréfum.
  • Kaupin eru bundin skilyrðum um samþykki viðkomandi yfirvalda og hluthafa Xbrane.
  • Stjórn Xbrane hefur samþykkt söluna til Alvotech. Auk stjórnarmanna, hafa stórir fjárfestar í hluthafahópi Xbrane skuldbundið sig til að greiða atkvæði með sölunni á hluthafafundi.
  • Stjórn Xbrane mun kalla saman hluthafafund í apríl til að afla heimildar til að ljúka sölunni.
  • Reiknað er með því að kaupunum verði lokið í apríl.

„Alvotech er nú þegar í hópi leiðandi fyrirtækja á heimsvísu í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða. Velta þeirra frumlyfja sem Alvotech þróar hliðstæður við er umtalsvert meiri en hjá nokkrum keppinaut okkar. Við ætlum að halda áfram að fjölga lyfjum í þróun og þar með bæta aðgengi sjúklinga að líftæknilyfjum í hæsta gæðaflokki,“ sagði Róbert Wessman, stofnandi, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech. „Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane auka enn frekar afkastagetu okkar í þróun nýrra lyfja, á sama tíma og Alvotech ætlar að fjölga verulega starfsfólki við lyfjaþróun á Íslandi. Fjöldi líftæknifyrirtækja í Svíþjóð er sá annar mesti í heiminum á eftir Bandaríkjunum. Aðgengi að reyndu starfsfólki er því gott og jafnframt opnast möguleikar á frekara samstarfi við önnur sænsk líftæknifyrirtæki. Kaupin á þróunarstarfsemi Xbrane er því mikilvægt skref sem treystir enn frekar leiðandi stöðu okkar í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða.“

Um XB003

Frumlyf XB003, Cimizia (certolizumab pegol) er einstofna mótefni, notað til meðferðar við sjálfsónæmissjúkdómum eins og psóríasis og liðagigt. Tekjur af sölu þess á síðasta ári námu nærri 300 milljörðum króna. Rannsóknir sýna að Cimizia er öruggt til notkunar fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti.

Ráðgjafar

DNB Carnegie eru fjárhagslegir ráðgjafar Alvotech við kaupin á Xbrane. Cirio og Westerberg veittu lögfræðilega ráðgjöf.

Notkun vörumerkja

Cimizia er skráð vörumerki UCB.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Meiri upplýsingar er að finna á , , og almennri . Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: , , , og

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson, forstöðumaður



EN
20/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First H...

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First Half of 2025 on August 14, 2025, at 8:00 am EDT REYKJAVIK, ICELAND (August 6, 2025) – Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specialized in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today that it will release financial results for the first half of the year ended June 30, 2025, after U.S. markets close on Wednesday, August 13, 2025.  Alvotech will also conduct a conference call to present the financial results and recent business highlights on Thursday August 14, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör fyrri helmings ársins 2025 þann 14. ágúst nk. ...

Alvotech kynnir uppgjör fyrri helmings ársins 2025 þann 14. ágúst nk. kl. 12 á hádegi REYKJAVÍK (6. ágúst 2025) Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun senda út tilkynningu með uppgjöri fyrir fyrri helming ársins 2025 eftir lokun markaða í Bandaríkjunum, miðvikudaginn 13. ágúst nk. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst hann kl. 12 á hádegi, fimmtudaginn 14. ágúst nk. Streymi af uppgjörsfundinum, sem fer fram á ensku, verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Alvotech, , á slóðinni . Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið, sem aðgengil...

 PRESS RELEASE

Inbjudan til Alvotech presentation av bokslutskommunikén och rapporten...

Inbjudan til Alvotech presentation av bokslutskommunikén och rapporten för första halvåret 2025 REYKJAVIK, ISLAND (6 AUGUSTI, 2025) – Alvotech (NASDAQ:ALVO SDB), ett globalt biofarmaceutiskt företag som specialiserar sig på utveckling och tillverkning av biosimilära läkemedel för patienter över hela världen, publicerar bokslutskommunikén för första halvåret som slutade den 30 juni 2025 den 13 augusti 2025 efter att de amerikanska marknaderna stängt. Resultaten presenteras i en webcast och telefonkonferens klockan 14:00 CET (8:00 AM EDT) den 14 augusti 2025. Presentationen hålls på engelsk...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First H...

Alvotech Announces Webcast to Report Financial Results for the First Half of 2025 on August 14, 2025, at 8:00 am EDT REYKJAVIK, Iceland, Aug. 06, 2025 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specialized in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced today that it will release financial results for the first half of the year ended June 30, 2025, after U.S. markets close on Wednesday, August 13, 2025. Alvotech will also conduct a conference call to present the financial results and recent business highlights on Thu...

 PRESS RELEASE

Alvotech Appoints Linda Jónsdóttir as Chief Financial Officer

Alvotech Appoints Linda Jónsdóttir as Chief Financial Officer REYKJAVIK, ICELAND (July 10, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced the appointment of Linda Jónsdóttir as Chief Financial Officer (CFO). Linda is a highly experienced international executive with a strong background in finance and corporate leadership. She has held senior roles across a range of industries, including banking, food technology, transportation, and healthcare. Linda will be based in Ice...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch