ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech kynnir jákvæða niðurstöður úr rannsókn á lyfjahvörfum AVT03, fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia og Xgeva

Alvotech kynnir jákvæða niðurstöður úr rannsókn á lyfjahvörfum AVT03, fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia og Xgeva

  •  Aðalendapunktar rannsóknarinnar voru uppfylltir, en henni var ætlað að bera saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT03 og Prolia í heilbrigðum einstaklingum.
  • Prolia og Xgeva (denosumab) eru lyf við sjúkdómum í beinum 

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag jákvæðar niðurstöður rannsóknar á lyfjahvörfum AVT03, sem er fyrirhuguðu líftæknilyfjahliðstæða við Prolia og Xgeva, en bæði lyfin innihalda denosumab.

Rannsókninni var ætlað bera saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT03 og Prolia í heilbrigðum einstaklingum og voru aðalendapunktar hennar uppfylltir. Rannsókn á klínískri virkni AVT03 í sjúklingum stendur yfir, auk rannsóknar til að bera saman lyfjahvörf AVT03 og Xgeva í heilbrigðum einstaklingum.

„Við erum afar ánægð með framvindu klínískra rannsókna á AVT03. Þessi áfangi og nýlegar niðurstöður úr öðrum klínískum rannsóknum, sýnir vel getu Alvotech og framúrskarandi aðstöðu sem við höfum byggt upp til þróunar og framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum,“ sagði Joseph McClellan, framkvæmdastjóri rannsókna hjá Alvotech.

Prolia (denosumab) er líftæknilyf til meðferðar við beinþynningu eftir tíðahvörf hjá konum og við beintapi hjá körlum og konum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum. Xgeva, sem inniheldur einnig denosumab í öðru lyfjaformi, er gefið til að fyrirbyggja einkenni frá beinum, svo sem sjúkleg beinbrot hjá fullorðnum með langt gengna illkynja sjúkdóma sem tengjast beinum. Það er einnig gefið til meðferðar við risafrumuæxli í beinum. Á liðnum tólf mánuðum fyrir 30. september 2023, námu samanlagðar tekjur af sölu Prolia og Xgeva meira en 825 milljörðum króna, samkvæmt ársfjórðungslegum uppgjörstölum framleiðanda frumlyfjanna.

Um AVT03 (denosumab)

AVT03 er einstofna mótefni og fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Prolia og Xgeva (denosumab). Denosumab beinist að og binst með mikilli sækni og sértækni við RANKL og kemur í veg fyrir virkjun viðtaka hans, svokallað RANK. Fyrirbygging RANKL/RANK tengingarinnar minnkar endurupptöku beina og beineyðingu af völdum krabbameins [1]. AVT03 er líftæknilyfjahliðstæða í þróun og hefur ekki verið samþykkt til notkunar á neinu markaðssvæði.

[1]

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsla- og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson, forstöðumaður



EN
29/01/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech Appoints DNB Carnegie as Liquidity Provider on Nasdaq Stockho...

Alvotech Appoints DNB Carnegie as Liquidity Provider on Nasdaq Stockholm REYKJAVIK, ICELAND AND STOCKHOLM, SWEDEN (May 19, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, the “Company”) has entered into agreement with DNB Carnegie Investment Bank AB (publ) (“DNB Carnegie”) regarding liquidity provider services to ensure liquidity in the Company’s Swedish Depository Receipts (“SDRs”), equity share equivalents, trading on Nasdaq Stockholm. The arrangement is in accordance with the framework of Nasdaq Stockholm’s rules on liquidity providers. In the role of liquidity provider, DNB Carnegie undertakes to cont...

 PRESS RELEASE

Alvotech semur við fjárfestingabankann DNB Carnegie um viðskiptavakt á...

Alvotech semur við fjárfestingabankann DNB Carnegie um viðskiptavakt á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði gengið frá samningi við DNB Carnegie Investment Bank AB (“DNB Carnegie”) um viðskiptavakt með bréf félagsins á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi. Sænsk heimildarskírteini (SDR), sem eru ígildi hlutabréfa í Alvotech, hafa verið tekin til viðskipta á markaðnum í Stokkhólmi. Samkvæmt samningnum gefur DNB Carnegie daglega út virk kaup og sölutilboð á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi, fyrir heimildarskírteinin í Alvotech, í samræmi við reglur ...

 PRESS RELEASE

Trading in Alvotech’s Shares on Nasdaq Stockholm Commences Today

Trading in Alvotech’s Shares on Nasdaq Stockholm Commences Today Not to be released, published, distributed or circulated in any jurisdiction in which it would be unlawful to do so. This press release is for information purposes only and does not constitute an offer to sell or a solicitation of an offer to buy any securities. REYKJAVIK, ICELAND AND STOCKHOLM, SWEDEN (May 19, 2025) — On May 16, 2025 Alvotech (NASDAQ: ALVO, the “Company”), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, announced the outcome of the offe...

 PRESS RELEASE

Viðskipti með bréf í Alvotech hefjast á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi ...

Viðskipti með bréf í Alvotech hefjast á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi í dag Viðskipti með hluti í Alvotech (NASDAQ: ALVO) hefjast í dag á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi. Félagið verður skráð undir auðkenninu „ALVO SDB“. Skráningu Alvotech í kauphöllina í Stokkhólmi er ætlað að auka sýnileika félagsins hjá markaðsaðilum í Skandinavíu og Evrópu, auka viðskipti með hluti í félaginu og breikka hluthafahópinn. Bréf Alvotech verða nú skráð samhliða á þremur aðalmörkuðum, Nasdaq í Bandaríkjunum, Nasdaq á Íslandi og Nasdaq í Stokkhólmi. „Við lítum á skráninguna í Stokkhólmi sem þjónustu við núveran...

 PRESS RELEASE

Alvotech Announces the Outcome of the Offering in Connection with the ...

Alvotech Announces the Outcome of the Offering in Connection with the Company’s Listing on Nasdaq Stockholm Not to be released, published, distributed or circulated in any jurisdiction in which it would be unlawful to do so. This press release is for information purposes only and does not constitute an offer to sell or a solicitation of an offer to buy any securities. REYKJAVIK, ICELAND AND STOCKHOLM, SWEDEN (May 16, 2025) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, the “Company”), a global biotech company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch