ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech kynnir niðurstöður klínískra rannsókna á AVT04, fyrirhugaðri hliðstæðu við Stelara á ársþingi samtaka bandarískra húðsjúkdómalækna (AAD)

Alvotech kynnir niðurstöður klínískra rannsókna á AVT04, fyrirhugaðri hliðstæðu við Stelara á ársþingi samtaka bandarískra húðsjúkdómalækna (AAD)

  • Alvotech kynnir niðurstöður úr rannsókn á lyfjahvörfum og klínískri rannsókn á sjúklingum fyrir AVT04 (ustekinumab), fyrirhugaða líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara
  • Umsóknir um markaðsleyfi fyrir AVT04 hafa verið teknar til afgreiðslu meðal annars í Evrópu og Bandaríkjunum 

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að fyrirtækið muni kynna niðurstöður úr klínískum rannsóknum á AVT04 (ustekinumab), fyrirhugaðri líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara® á ársþingi samtaka bandarískra húðsjúkdómalækna (AAD) sem fram fer í New Orleans í Bandaríkjunum 17. – 21. mars 2023.  Fyrr á þessu ári tilkynnti Alvotech að umsóknir um markaðsleyfi fyrir AVT04 hefðu verið teknar til afgreiðslu m.a. af (EMA) og (FDA).

Veggspjaldakynning Alvotech, sem ber yfirskriftina “Assessment of Bioequivalence Between Candidate Biosimilar AVT04 and Reference Ustekinumab,”  fjallar um niðurstöður rannsóknar á lyfjahvörfum AVT04 í heilbrigðum einstaklingum. Í rannsókninni () voru borin saman lyfjahvörf í þremur hópum sem fengu 45 mg/0.5mL skammt undir húð af AVT04 eða Stelara frá bandarískum og evrópskum mörkuðum. Alvotech tilkynnti í að niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að lyfjahvörf, öryggi, þolanleiki og ónæmingarverkun væru jafngild fyrir AVT04 og samaburðarlyfið.

Önnur veggspjaldakynning Alvotech á ráðstefnunni, sem ber yfirskriftina “Assessment of Therapeutic Equivalence Between Candidate Biosimilar ATV04 and Reference Ustekinumab,” fjallar um niðurstöður rannsóknar sem bar saman klíníska virkni, öryggi og ónæmingarverkun AVT04 og samanburðarlyfsins Stelara.  Rannsóknin () fór fram í sjúklingum með miðlungsmikinn og verulegan psoriasis. Alvotech tilkynnti í að aðalendapunktur rannsóknarinnar hefði verið uppfylltur og sýndu niðurstöður hennar jafngilda klíníska virkni fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech og Stelara.

Veggspjöldin verða aðgengileg ráðstefnugestum frá og með föstudeginum 17. mars. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á .   

Um AVT04 (ustekinumab)

AVT04 er einstofna mótefni og líftæknilyfjahliðstæða við Stelara® (ustekinumab). Ustekinumab binst tveimur frumuboðefnum í ónæmiskerfinu, interleukin-12 og interleukin-23. AVT04 var þróað í Sp2/0 frumulínu. Við framleiðsluna er beitt stöðugri gegnumflæðisaðferð (e. continuous perfusion process). AVT04 er lyf í þróun og hefur ekki enn hlotið markaðsleyfi.

Um Alvotech

Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson



EN
17/03/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch