ALVO OAKTREE ACQUISITION CORP II

Alvotech nær samningum um alþjóðlega markaðssetningu hliðstæðu við augnlyfið Eylea

Alvotech nær samningum um alþjóðlega markaðssetningu hliðstæðu við augnlyfið Eylea

Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) hefur náð samningi við frumlyfjafyrirtækin Regeneron og Bayer sem leysir endanlega úr öllum ágreiningi um hugverkaréttindi þeirra fyrir augnlyfið Eylea (aflibercept 2 mg) og gerir Alvotech þar með kleift að markaðssetja hliðstæðu við líftæknilyfið á öllum alþjóðlegum mörkuðum. Hliðstæðan hefur þegar hlotið markaðsleyfi yfirvalda á Evrópska efnahagssvæðinu, í Bretlandi og Japan.

Samningurinn heimilar Alvotech og samstarfsfélögum þess að markaðssetja hliðstæðuna frá 1. janúar sl. í Bretlandi, Kanada og Japan og frá 1. maí nk. á Evrópska efnahagssvæðinu og öllum öðrum markaðssvæðum að Bandaríkjunum undanskildum. Samningur um markaðssetningu í Bandaríkjunum í fjórða ársfjórðungi var þegar í höfn. Í Japan er samkvæmt samningnum heimilt að markaðssetja hliðstæðuna með öllum samþykktum ábendingum nema sjónskerðingu vegna sjónudepilsbjúgs af völdum sykursýki, en án þeirrar takmörkunar frá 1. nóvember nk. Önnur ákvæði samningsins eru bundin trúnaði.

„Við höfum þegar tilkynnt um samkomulag um réttinn til markaðssetningar í Bandaríkjunum og fögnum því að leysa endanlega úr mögulegum ágreiningi varðandi öll önnur markaðssvæði. Þessi samningur tryggir samstarfsaðilum okkar sterka samkeppnisstöðu. Frumlyfið er leiðandi alþjóðlega í meðferð á sjúkdómum í sjónhimnu augans og markaðssetning á hliðstæðu Alvotech getur stuðlað að aukinni sjálfbærni heilbrigðiskerfa um allan heim,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

Þau fyrirtæki sem hafa samið við Alvotech um rétt til markaðsetningar hliðstæðunnar við Eylea eru m.a. Advanz Pharma, sem fer með réttinn til markaðssetningar í Bretlandi og á Evrópska efnahagssvæðinu, STADA (markaðsleyfishafi í Þýskalandi), Biogaran (markaðsleyfishafi fyrir Frakkland) og Fuji Pharma (markaðsleyfishafi í Japan).

Um AVT06 (aflibercept)

AVT06 er raðbrigðasamrunaprótein og líftæknilyfjahliðstæða við Eylea (aflibercept), sem hefur verið samþykkt til markaðssetningar í Japan, Bretlandi og á Evrópska efnahagssvæðinu. Aflibercept binst æðaþelsvaxtarþáttum (Vascular Endothelial Growth Factors, VEGF) og getur þannig hamlað bindingu og virkjun VEGF-viðtaka, nýæðamyndun og æðagegndræpi.

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á , á og á . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á , , og .

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið

Benedikt Stefánsson, forstöðumaður



EN
29/01/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OAKTREE ACQUISITION CORP II

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, ICELAND (March 4, 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To listen to the webcast, ...

 PRESS RELEASE

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results

Alvotech to Report Fourth Quarter and Full Year 2025 Financial Results REYKJAVIK, Iceland, March 04, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Alvotech (NASDAQ: ALVO) (the “Company”), a global biotechnology company specializing in the development and manufacture of biosimilar medicines for patients worldwide, today announced that it will release its fourth quarter and full year 2025 financial and operating results on Wednesday, March 18, 2026, after the U.S. markets close. The Company will also host a conference call with a live Q&A on Thursday, March 19, 2026 at 08:00 EST (12:00 GMT, 13:00 CET). To lis...

 PRESS RELEASE

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk.

Alvotech kynnir uppgjör ársins 2025 þann 19. mars nk. REYKJAVÍK (4. Mars 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun birta uppgjör ársins 2025 og fjórða ársfjórðungs miðvikudaginn 18. Mars 2026, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 19. Mars 2026. Til að hlusta á streymið, skráið ykkur hér: Hlekkur fyrir þá sem hyggjast beina spurningum til stjórnenda:   Glærur og annað kynningarefni verða aðgengileg á  fyrir fundinn. Nánari upplýsingar FjölmiðlatengslBenedikt StefánssonSarah MacLeod Fjárfestatengsl...

 PRESS RELEASE

Transactions of Managers and Closely Associated Persons

Transactions of Managers and Closely Associated Persons Attached are copies of two filings with the Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF) regarding transactions of managers and closely associated persons. ATP Holdings ehf. announced a sale of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026, and Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") announced the acquisition of 2,701,617 shares in Alvotech on January 30, 2026. ATP Holdings ehf. belongs to the Aztiq group and the transaction was thus a transfer of shares within the group. The announcements related to the same t...

 PRESS RELEASE

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila

Viðskipti stjórnenda og tengdra aðila Í viðhengi eru tvær tilkynningar um viðskipti stjórnenda og tengdra aðila sem lagðar voru inn til birtingar hjá fjármálaeftirliti Lúxemborgar, Luxembourg Commission de Surveillance du Secteur Financier (CSSF). ATP Holdings ehf. tilkynnti um sölu á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. og Aztiq Pharma Partners S.à r.l. ("Aztiq") um kaup á 2.701.617 bréfum þann 30. janúar sl. ATP Holdings ehf. er í sömu samstæðu og Aztiq og var því um að ræða flutning bréfanna innan samstæðunnar. Tilkynningarnar vörðuðu sömu viðskipti og verð bréfanna í viðskiptunum var 4,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch