Viðskipti með bréf í Alvotech hefjast á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi í dag
Viðskipti með hluti í Alvotech (NASDAQ: ALVO) hefjast í dag á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi. Félagið verður skráð undir auðkenninu „ALVO SDB“. Skráningu Alvotech í kauphöllina í Stokkhólmi er ætlað að auka sýnileika félagsins hjá markaðsaðilum í Skandinavíu og Evrópu, auka viðskipti með hluti í félaginu og breikka hluthafahópinn. Bréf Alvotech verða nú skráð samhliða á þremur aðalmörkuðum, Nasdaq í Bandaríkjunum, Nasdaq á Íslandi og Nasdaq í Stokkhólmi.
„Við lítum á skráninguna í Stokkhólmi sem þjónustu við núverandi hluthafa eða þá sem hyggjast fjárfesta í félaginu og að hún muni stuðla að auknum viðskiptum með bréf í félaginu. Hlutabréfamarkaðurinn í Stokkhólmi er einn sá stærsti í Evrópu, sérstaklega í viðskiptum með bréf fyrirtækja í heilbrigðisgeiranum. Skráning Alvotech á Nasdaq í Stokkhólmi mun stuðla að því að breiðari hópur markaðsaðila í Skandinavíu og Evrópu sem fjárfesta í líftækni- og lyfjafyrirtækjum kynnist Alvotech og geti fjárfest í félaginu. Viðbrögð markaðsaðila sem við höfum fundað með að undanförnu og umframeftirspurn í útboðinu sem lauk í síðustu viku, bendir til mikils áhuga,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.
Útboði í tengslum við skráningu félagsins á markaðinn í Stokkhólmi, sem náði aðeins til fjárfesta í Svíþjóð, lauk föstudaginn 16. maí sl. Mikill áhugi var meðal almennra fjárfesta á að eignast hluti í Alvotech og eftirspurn margföld á við framboð. Alls fengu meira en 3.000 nýir hluthafar afhent sænsk heimildarskírteini (SDR), sem eru ígildi hlutabréfa í Alvotech. Í boði voru 441.600 SDR. Gengi í útboðinu var 1.167,8 krónur (87,51 sænskar), sem jafngildir 90% af vegnu meðalverði hluta í Alvotech á útboðstímabilinu, 9.-16. maí sl.
Alvotech býður hluthöfum sem áttu bréf í félaginu við skráninguna í Stokkhólmi að breyta hlutabréfum sínum í SDR og mun standa straum af þóknunum vegna þessarar yfirfærslu til Euroclear verðbréfamiðstöðvarinnar í Svíþjóð og DNB Bank ASA í Svíþjóð, sem sér um útgáfu heimildarskírteinanna. Tilboðið gildir aðeins fyrir núverandi hluthafa í tólf mánuði frá skráningunni Stokkhólmi. Hluthafar þurfa þó að standa skil á öðrum þjónustugjöldum, sem gætu verið innheimt af vörsluaðila, miðlara eða viðskiptabanka. Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum eru beðnir um að senda fyrirspurn á póstfangið .
Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).
Meiri upplýsingar er að finna á , , og almennri . Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: , , og
Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
