Eik fasteignafélag hf.: Birting árshlutauppgjörs þann 25. ágúst - Kynningarfundur 26. ágúst
Eik fasteignafélag hf. mun birta árshlutauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði 2021 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. ágúst nk.
Rafrænn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 26. ágúst nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu árshlutauppgjörsins.
