Festi hf.: Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2025 þann 29. apríl 2025 og afkomufundur þann 30. apríl
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða þriðjudaginn 29. apríl næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 30. apríl kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2025 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: . Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið . Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: .
