Festi hf.: Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2023 þann 26. júlí 2023 og afkomufundur þann 27. júlí.
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða miðvikudaginn 26. júlí næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 27. júlí kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 27. júlí 2023 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: . Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið . Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: .
