Festi hf.: Birting uppgjörs 4F og 12M 2024 þann 5. febrúar 2025 og afkomufundur þann 6. febrúar
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 4. ársfjórðung 2024 og fyrir árið 2024 eftir lokun markaða miðvikudaginn 5. febrúar næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 6. febrúar kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 6. febrúar 2025 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: . Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið . Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: .
